Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2021

Fréttir

Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 21. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2021.

Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 21. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2021. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni.

Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað við lögheimili síðustu 12 mánuði.  Umsóknum og ábendingum skal skilað á rafrænu eyðublaði á vef Hafnarfjarðarbæjar, með tölvupósti á menning@hafnarfjordur.is eða í Ráðhús Hafnarfjarðar merkt:

Þjónustuver Hafnarfjarðar – Bæjarlistamaður
Strandgötu 6
220 Hafnarfirði

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2021 fær greidda 1,5 milljónir króna.
Skilafrestur tilnefninga er til 1. febrúar 2021.

Tengt efni:

Ábendingagátt