Bæjarráð Hafnarfjarðar skorar á Alþingi að lækka tryggingargjaldið

Fréttir

Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í dag var lögð fram áskorun til Alþingis um að tryggingargjald 2016 verði lækkað verulega umfram það sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu.

Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í dag var lögð fram áskorun til Alþingis um að tryggingargjald 2016 verði lækkað verulega umfram það sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu.

Í minnisblaði sem lagt var fram á fundum kemur fram að tryggingargjaldið var 5,34% fyrir hrun en var hækkað í 7% árið 2009 og þá mældist atvinnuleysi 8%. Í dag er gjaldið 7,49% og mun lækka í 7,35% á árinu 2016. Atvinnuleysi nú er 3,1%.

Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs segir að Hafnarfjarðarbær muni greiða um 670 m.kr. í tryggingargjald árið 2015 en þessi fjárhæð væri um 478 m.kr. ef tryggingargjaldið væri óbreytt frá því fyrir hrun eða lækkun sem nemur um 192 m.kr.

„Eins og fram kemur í minnisblaðinu  varði ríkið  um 28 milljörðum króna til atvinnutryggingarsjóðs þegar hæst lét árið 2010 og þá nam atvinnuleysið 8,1%. Í fjárlögum 2016 er gert ráð fyrir að atvinnuleysisbætur hækki um 9,4% á milli ára og að ríkið verji um 13,3 milljörðum til atvinnuleysistryggingarsjóðs. „  segir Rósa

Ábendingagátt