Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær hlaut í gær nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2025. Bærinn hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í opinberri nýsköpun með leiðandi umbótastarfi við stafvæðingu á þjónustu og rekstri sveitarfélagsins.
Hafnarfjarðarbær hlaut í gær nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2025. Bærinn fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í opinberri nýsköpun með leiðandi umbótastarfi við stafvæðingu á þjónustu og rekstri sveitarfélagsins.
Valdimar Víðisson bæjarstjóri tók við verðlaununum ásamt þeim Ingvari Högna Ragnarssyni, verkefnastjóra stafrænna verkefna, og Garðari Rafni Eyjólfssyni, kerfisfræðingi með vefumsjón bæjarins.
„Við erum afar þakklát fyrir þessa viðurkenningu. Við erum einmitt á þeirri braut sem við viljum sem er að veita góða og eins fumlausri þjónustu við íbúa og nokkur kostur er. Þetta er ekki hægt nema með starfsfólki sem brennur fyrir því að sníða og innleiða lausnir sem einfalda og bæta þjónustu við íbúa Hafnarfjarðarbæjar,“ segir Valdimar Víðisson um árangurinn.
Fjársýslan veitti verðlaunin og er markmiðið með þeim að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í opinberri nýsköpun síðastliðna 12 mánuði. Dómnefndina skipuðu fulltrúa fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Fjársýslunnar og verðlaunahafar síðasta árs. Ingvar Högni segir teymið stolt að fá þessa viðurkenningu. „Hún hvetur okkur áfram til frekari góðra verka fyrir íbúa. Það næst ekki árangur í svona vegferð nema að allir taki þátt. Þess vegna er vert að þakka starfsfólki Hafnarfjarðar fyrir hversu vel hefur gengið. Við erum hvergi hætt,“ segir hann.
Garðar Rafn tekur undir það. „Það er svo margt sem við höfum gert undanfarið ár. Við settum upp Auði, fyrsta spjallmenni sveitafélaga byggt á gervigreind. Svo endurnýjuðum við alla vefi stofnana bæjarins og Evolve-sjálfvirkni róbótinn okkar er stafrænn starfsmaður sem hefur einfaldað okkur mjög verkin við þjónustu við bæjarbúa.“
Fleiri fengu viðurkenningu síðdegis í gær en alls voru 36 tilnefndir.
Ingþór Karl Eiríksson, forstjóri Fjársýslunnar og formaður dómnefndarinnar, veitti verðlaunin.
Hafnarfjarðarbær er stoltur af starfsfólki sínu og frábærri vinnu þess og afar ánægður að eftir þessu góða starfi er tekið. Takk.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…