Bentu á þann sem þér þykir bestur – Snyrtileikinn 2020

Fréttir

Nú fer hver að vera síðastur til að senda inn tilnefningar í Snyrtileikann 2020 en frestur til tilkynninga rennur út 19. ágúst. Val til viðurkenninga byggir eingöngu á innsendum tillögum.

Frestur til tilnefninga rennur út 19. ágúst! 

Nú fer hver að vera síðastur til að senda inn tilnefningar í Snyrtileikann 2020.  Í upphafi sumars auglýsti Hafnarfjarðarbær eftir tilnefningum frá íbúum og öðrum áhugasömum til viðurkenninga fyrir fallega og vel hirta garða, götur og opin svæði eða stofnanalóðir í Hafnarfirði. Val til viðurkenninga byggir eingöngu á innsendum tillögum.

Um mitt sumar var þátturinn Garðarölt í Hafnarfirði frumsýndur á sjónvarpsstöðinni N4. Í þættinum fengum við að kynnast þremur fallegum görðum í einkaeigu í Hafnarfirði auk Hellisgerðis, skrúðgarðsins okkar. Allir þessir þrír garðar hafa fengið viðurkenningu fyrir snyrtileika.  Einnig var fræðst um umhverfis- og auðlindastefnu bæjarins og viðtöl tekin við Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra, og Helgu Ingólfsdóttur, formann umhverfis- og framkvæmdaráðs.

Horfa á Garðarölt í Hafnarfirði

Hver er til fyrirmyndar HEIMA í Hafnarfirði?

Með viðurkenningunum er verið að skapa ákveðna fyrirmynd í þessum efnum, jafnt á íbúðarsvæðum sem atvinnusvæðum. Með þessu vill Hafnarfjarðarbær vekja áhuga almennings á fegrun umhverfisins innan bæjarins með því að beina athyglinni að þeim sem til fyrirmyndar teljast á vettvangi umhverfismála í Hafnarfirði og ættu þannig að vera öðrum hvatning til framkvæmda.

Viðurkenningarhátíð verður haldin í ágúst

Afar mikilvægt er að íbúar sem og fyrirtæki séu hvött áfram og verðlaunuð fyrir góða umgengni og snyrtilegt umhverfi. Viðurkenningar verða veittar við hátíðlega athöfn í Gróðrarstöðinni Þöll við Kaldárselsveg í lok ágúst. Sendið okkur tilnefningu á: berglindg@hafnarfjordur.is. Einnig er hægt að senda mynd og tilnefningu í gegnum ábendingagátt Hafnarfjarðarbæjar.

Ábendingagátt