Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Menningar- og ferðamálanefnd veitti viðurkenningar fyrir best skreyttu húsin og best skreyttu götuna í Hafnarfirði.
Um helgina voru veittar viðurkenningar fyrir best skreyttu húsin og best skreyttu götuna í Hafnarfirði. Hafnfirðingar og aðrir áhugasamir voru í upphafi desembermánaðar hvattir til að setja upp stóru jólagleraugun og senda ábendingu um það hús í Hafnarfirði sem þykir bera af í jólaskreytingunum þetta árið.
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður menningar- og ferðamálanefndar heimsótti verðlaunahafana um helgina og afhenti íbúum viðurkenningar og tré frá Skógrækt Hafnarfjarðar en valið var í höndum menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar.
Austurgata 47 fékk viðurkenningu fyrir bjarta og fallega skreytingu við Lækinn sem gefur Austurgötunni jólalegan blæ
Furuvellir 19 fékk viðurkenningu fyrir ótrúlega skrautlega og fallega skreytingu þar sem bætt er í á hverju ári. Hér er sannkallaður metnaður á ferð og mest skreytta húsið.
Hellisgata 34 fékk viðurkenningu fyrir að fylla götuna sannri jólagleði því nánast allt er skreytt sem hægt er að skreyta og meira að segja bíllinn, sem stendur í hlaðinu, hefur verið skreyttur.
Hlíðarbraut 5 fékk viðurkenningu fyrir bjarta og fallega skreytingu á fallegu húsi í gömlu hverfi.
Lækjarhvammur 20 fékk viðurkenningu fyrir fallega og líflega skreytingu í Hvömmunum, fulla af litum og gleði
Skipalón 21 fékk viðurkenningu fyrir skemmtilega skreyttan pall við fjölbýlishús sem gleður augað og fangar athygli fólks
Skjólvangur 10 fékk viðurkenningu fyrir smekklega skreytingu í Norðurbænum sem rímar vel við húsið
Suðurgata 9 fékk viðurkenningu fyrir framtakssemi í skreytingum. Garðurinn er einstaklega fallega skreyttur og lífgar bæði uppá götuna og eins fyrir þá sem leið eiga leið um fótgangandi. Hér hefur mörgum bæjarbúanum verið boðið til að njóta og upplifa og greinilegt að íbúar hafa mjög gaman að gera fallegt í kringum sig.
Svalbarð 2 fékk viðurkenningu fyrir líflega og hressandi skeytingu. Mikill metnaður í skreytingum hér og mikið úrval af seríum.
Furuvellir 13-25 er best skreytta gatan þriðja árið í röð og fær hinn margrómaða jólaskjöld. Gatan er einstaklega jólaleg og falleg og samstaða greinilega góð hjá íbúum því allir taka þátt í að skreyta.
Hafnarfjarðarbær óskar öllum hlutaðeigandi innilega til hamingju!
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…