Betra grenndargámakerfi – Aukin flokkun og stærri gámar

Fréttir

Þjónusta við grenndargáma í Hafnarfirði er í útboði og er stefnt að því að nýtt og betra kerfi taki við í febrúar 2016. 

Þjónusta við grenndargáma í Hafnarfirði er í útboði og er stefnt að því að nýtt og betra kerfi taki við í febrúar 2016.  Breytingar verða á söfnunargámum frá 1. september og því mögulegar raskanir á þjónustu meðan verið er að skipta út gámum.

Nýtt grenndargámakerfi, sem tekur við í febrúar, byggir á stærri gámum og auknum flokkunarmöguleikum þar sem gámar fyrir glerumbúðir munu bætast við á hluta grenndarstöðvanna. Á stærstu grenndarstöðvunum verður því hægt að flokka pappír, plastumbúðir, glerumbúðir, föt og klæði, dósir og flöskur.

Fatagámar eru á vegum Rauða kross Íslands og dósasöfnun er í höndum Skátanna, en þessir gámar eru ekki á öllum grenndarstöðvum.

Söfnun á glerumbúðum á grenndarstöðvum er liður í að auka endurvinnslu á höfuðborgarsvæðinu en SORPA stefnir að því að ná yfir 95% endurnýtingarhlutfalli úrgangs frá heimilum á svæðinu á næstu árum.

Ábendingagátt