Bílastæði grunnskóla opin fyrir útilegutæki

Tilkynningar

Síðustu árin hefur Hafnarfjarðarbær boðið eigendum útilegutækja að leggja búnaði sínum við grunnskóla sveitarfélagsins meðan þeir eru lokaðir. Hér er átt við búnað eins og tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi, húsbíla og annað tengt sumri og ferðalögum. Boðið nær bara til bílastæða við grunnskóla sveitarfélagsins og stendur yfir til 10. ágúst 2025.

Útilegutækin við grunnskólana

Hafnarfjarðarbær býður nú eigendum útilegutækja að leggja búnaði sínum við grunnskóla sveitarfélagsins meðan þeir eru lokaðir, rétt eins og síðustu ár. Hér er átt við búnað eins og tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi, húsbíla og annað tengt sumri og ferðalögum.

Oft á tíðum er erfitt að koma þessum búnaði fyrir innan lóðarmarka án þess að tækin verði fyrir eða til vandræða fyrir aðra. Því er tilvalið að nýta þessi stæði. Boðið nær aðeins til bílastæða við grunnskóla sveitarfélagsins, ekki leikskóla sem eru starfandi yfir sumartímann og ekki framhaldsskólanna í bænum sem eru ekki hluti af rekstri sveitarfélagsins.

Boðið stendur til 10. ágúst 2025

Stæði grunnskólanna verða opin fyrir slíkan búnað til og með sunnudeginum 10. ágúst. Að morgni mánudagsins 11. ágúst þurfa öll tæki og búnaður að vera farin af öllum grunnskólalóðum Hafnarfjarðarbæjar. Sérstök athygli er vakin á því að engin gæsla eða myndavélar eru á svæðinu og öll tæki og búnaður áfram alfarið á ábyrgð eigendanna sjálfra.

Þetta boð nær eingöngu til tækja sem eru í virkri notkun yfir sumartímann en ekki til númerslausra bíla og tækja/búnaðar sem vantar geymslu allt árið um kring. Tæki, vagnar og bílar sem eru án númera eru fjarlægð á kostnað eigenda.

Lögreglusamþykkt fyrir Hafnarfjarðarkaupstað

Um ökutæki og umferð segir Lögreglusamþykkt Hafnarfjarðarkaupstaðar að:“…. á almannafæri megi ekki leggja eða setja neitt það sem hindrar umferð. Bannað er að leggja ökutæki á gangstéttum, opnum svæðum, óbyggðum lóðum og stígum. Staða eftirvagna og tengivagna, s.s. hestaflutningavagna, hjólhýsa, tjaldvagna, dráttarkerra, báta og þess háttar tækja sem og húsbíla sem þykja valda óþægindum, óþrifnaði eða hættu er bönnuð á götum og almennum bifreiðastæðum.

Umhverfis- og skipulagsþjónustu er heimilt að undangenginni viðvörun, t.d. með álímingarmiða með aðvörunarorðum, að flytja burtu og taka í vörslu ökutæki sem brjóta í bága við 1.–5. mgr. Lögreglusamþykktar, ökutæki sem standa án skráningarnúmera á lóðum við almannafæri, götum og almennum bifreiðastæðum og ökutæki sem skilin eru eftir á opnum svæðum. Tilkynna skal skráðum eiganda og/eða umráðamanni um flutninginn og skal hann bera kostnað vegna flutnings og vörslu ökutækisins.

Ábendingagátt