Bílastæði grunnskóla opin fyrir útilegutæki frá 14. júní

Fréttir

Um árabil hefur Hafnarfjarðarbær boðið íbúum sem eiga útilegutæki að leggja búnaði sínum við grunnskóla sveitarfélagsins meðan þeir eru lokaðir. Hér er átt við búnað eins og tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi, húsbíla og annað tengt sumri og ferðalögum. Oft á tíðum er erfitt að koma þessum búnaði fyrir innan lóðarmarka án þess að tækin verði fyrir eða til ama fyrir aðra.

Um árabil hefur Hafnarfjarðarbær boðið íbúum sem eiga útilegutæki
að leggja búnaði sínum við grunnskóla sveitarfélagsins meðan þeir eru lokaðir. Hér
er átt við búnað eins og tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi, húsbíla og annað tengt
sumri og ferðalögum og er í virkri notkun yfir sumartímann. Oft á tíðum er erfitt að koma þessum búnaði fyrir innan lóðarmarka
án þess að tækin verði fyrir eða til ama fyrir aðra. Því þykir tilvalið að bjóða upp á þennan möguleika. 

Boðið stendur frá 14. júní – 14. ágúst 2022

Stæði grunnskólanna verða opin fyrir slíkan búnað frá og með
þriðjudeginum 14. júní til og með sunnudeginum 14. ágúst.
 Mánudaginn 15. ágúst þurfa öll tæki að vera farin af stæðunum. Sérstök athygli
er vakin á því að engin gæsla eða myndavélar eru á svæðinu og öll tæki og
búnaður áfram alfarið á ábyrgð eigendanna sjálfra. Nær þetta boð eingöngu til
tækja sem eru í virkri notkun yfir sumartímann en ekki til númerslausra bíla og
tækja/búnaðar sem vantar geymslu allt árið um kring. Tæki, vagnar og bílar sem
eru án númera eru fjarlægð á kostnað eigenda. Í síðasta lagi sunnudaginn 14.
ágúst eiga öll tæki og búnaður að vera farin af öllum grunnskólalóðum
Hafnarfjarðarbæjar.

Lögreglusamþykkt fyrir Hafnarfjarðarkaupstað

Um ökutæki og umferð segir Lögreglusamþykkt Hafnarfjarðarkaupstaðar að:“…. á almannafæri megi ekki leggja eða setja neitt
það sem hindrar umferð. Bannað er að leggja ökutæki á gangstéttum, opnum
svæðum, óbyggðum lóðum og stígum. Staða eftirvagna og tengivagna, s.s.
hestaflutningavagna, hjólhýsa, tjaldvagna, dráttarkerra, báta og þess háttar
tækja sem og húsbíla sem þykja valda óþægindum, óþrifnaði eða hættu er bönnuð á
götum og almennum bifreiðastæðum. Umhverfis- og skipulagsþjónustu er heimilt að
undangenginni viðvörun, t.d. með álímingarmiða með aðvörunarorðum, að flytja
burtu og taka í vörslu ökutæki sem brjóta í bága við 1.–5. mgr. Lögreglusamþykktar,
ökutæki sem standa án skráningarnúmera á lóðum við almannafæri, götum og
almennum bifreiðastæðum og ökutæki sem skilin eru eftir á opnum svæðum.
Tilkynna skal skráðum eiganda og/eða umráðamanni um flutninginn og skal hann
bera kostnað vegna flutnings og vörslu ökutækisins.

Ábendingagátt