Bílastæði grunnskóla opin fyrir útilegutæki í sumar

Fréttir

Líkt og síðustu ár verður opið á þann möguleika að leggja hverskyns útilegutækjum sem í virkni eru yfir sumartímann á bílastæðum við grunnskóla Hafnarfjarðar. Leyfið gildir meðan grunnskólar sveitarfélagsins eru lokaðir.

Líkt og síðustu ár verður opið á þann möguleika að leggja hverskyns útilegutækjum sem í virkni eru yfir sumartímann á bílastæðum við grunnskóla Hafnarfjarðar. Nær leyfið til tjaldvagna, fellihýsa, hjólhýsa, húsbíla og annarra þeirra útilegutækja sem í notkun eru yfir sumartímann og erfitt er að koma fyrir innan lóðarmarka án þess að þau verði fyrir eða til ama fyrir aðra. Leyfið gildir meðan grunnskólar sveitarfélagsins eru lokaðir.

Sérstök athygli er vakin á því að engin gæsla eða myndavélar eru á svæðinu og öll tæki og búnaður áfram alfarið á ábyrgð eigendanna sjálfra. Gildir þetta boð Hafnarfjarðarbæjar frá og með mánudeginum 14. júní til og með sunnudeginum 8. ágúst 2021.

Sem fyrr segir nær þetta boð eingöngu til tækja sem eru í virkri notkun en ekki til númerslausra bíla og tækja/búnaðar sem vantar geymslu allt árið um kring. Tæki, vagnar og bílar sem eru án númera eru fjarlægð á kostnað eigenda. Í síðasta lagi sunnudaginn 8. ágúst eiga öll tæki og búnaður að vera farin af öllum grunnskólalóðum Hafnarfjarðarbæjar.

Lögreglusamþykkt fyrir Hafnarfjarðarkaupstað

Um ökutæki og umferð segir Lögreglusamþykkt Hafnarfjarðarkaupstaðar að:“…. á almannafæri megi ekki leggja eða setja neitt það sem hindrar umferð. Bannað er að leggja ökutæki á gangstéttum, opnum svæðum, óbyggðum lóðum og stígum. Staða eftirvagna og tengivagna, s.s. hestaflutningavagna, hjólhýsa, tjaldvagna, dráttarkerra, báta og þess háttar tækja sem og húsbíla sem þykja valda óþægindum, óþrifnaði eða hættu er bönnuð á götum og almennum bifreiðastæðum. Umhverfis- og skipulagsþjónustu er heimilt að undangenginni viðvörun, t.d. með álímingarmiða með aðvörunarorðum, að flytja burtu og taka í vörslu ökutæki sem brjóta í bága við 1.–5. mgr. Lögreglusamþykktar, ökutæki sem standa án skráningarnúmera á lóðum við almannafæri, götum og almennum bifreiðastæðum og ökutæki sem skilin eru eftir á opnum svæðum. Tilkynna skal skráðum eiganda og/eða umráðamanni um flutninginn og skal hann bera kostnað vegna flutnings og vörslu ökutækisins.

Vonandi geta einhverjir nýtt sér þennan möguleika!

Ábendingagátt