Bjarg íbúðafélag byggir 148 íbúðir í Hamranesi

Fréttir

Framkvæmdir við uppbyggingu á 148 íbúðum Bjargs íbúðafélags við Nónhamar og Hringhamar í Hamranesi í Hafnarfirði ganga vel. Uppbyggingin byggir á samkomulagi Hafnarfjarðarbæjar og Bjargs íbúðafélags á grundvelli laga um almennar íbúðir en Hafnarfjarðarbær lagði til 12% af stofnvirði íbúðanna eða um 550 milljónir króna. Reiknað er með að fyrstu íbúðir verði tilbúnar 1. janúar 2023 og þær síðustu 1. september 2023. 

Gert ráð fyrir að fyrstu íbúarnir flytji inn í upphafi árs 2023

Framkvæmdir við uppbyggingu á 148 íbúðum Bjargs íbúðafélags við Nónhamar og Hringhamar í Hamranesi í Hafnarfirði ganga vel. Uppbyggingin byggir á samkomulagi Hafnarfjarðarbæjar og Bjargs íbúðafélags á grundvelli laga um almennar íbúðir en Hafnarfjarðarbær lagði til 12% af stofnvirði íbúðanna eða um 550 milljónir króna. Reiknað er með að fyrstu íbúðir verði tilbúnar 1. janúar 2023 og þær síðustu 1. september 2023. Þessar íbúðir bætast við þær rúmlega 600 íbúðir sem eru í eigu og útleigu á vegum Bjargs og er uppbygging í Hafnarfirði ein af stærri uppbyggingum Bjargs íbúðafélags frá stofnun þess. Af 148 íbúðum munu 9 bætast við félagslegt húsnæðiskerfi Hafnarfjarðarbæjar.

IMG_1816

Fulltrúar frá Hafnarfjarðarbæ og Bjargi íbúðafélagi hittumst í Hamranesi í veðurblíðunni í vikunni til að ræða og upplifa gang mála.  Frá vinstri: Selma Unnsteinsdóttir verkefnastjóri á leigusviði Bjargs, Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs, Þröstur Bjarnason verkefnastjóri á framkvæmdasviði Bjargs, Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðarbæjar, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs. 

IMG_1844_1646390326616

Hamranesið er draumabyggð þeirra sem vilja lifa í nánd við náttúruna. Með uppland Hafnarfjarðar í bakgarðinum.  

Leiguheimili fyrir tekjulægri einstaklinga og fjölskyldur

Bjarg íbúðafélag er sjálfseignarstofnun sem rekin er án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norrænni fyrirmynd. Þegar hefur verið opnað fyrir umsóknir í íbúðirnar í Hamranesi á vef Bjargs íbúðafélags. Hagsýni, skynsemi og gæði eru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna til að halda leiguverði niðri og er þar m.a. horft til fermetrafjölda. Íbúðir eru því ekki stórar, um 45 fermetra tveggja herbergja íbúðir, 70 fermetra þriggja herbergja íbúðir, 85 fermetra fjögurra herbergja íbúðir og um 100 fermetra fimm herbergja íbúðir í fallegu umhverfi með garða sem eru að hluta til ósnert hraun með mosa.

IMG_1805Hagsýni, skynsemi og gæði eru höfð að leiðarljósi við hönnun til að halda leiguverði niðri og er þar m.a. horft til fermetrafjölda.

Draumabyggð þeirra sem vilja lifa í nánd við náttúruna

 Nýjar íbúðir Bjargs íbúðafélags rísa ásamt um 1.500 öðrum íbúðum í Hamranesinu og mun íbúafjöldi í fullbyggðu hverfi verða rúmlega 4.000. Hamranesið er nýtt 25 hektara hverfi gegnt Skarðshlíðarhverfi þar sem nú rís draumabyggð þeirra sem vilja lifa í nánd við náttúruna en þó steinsnar frá fjölbreyttri verslun, þjónustu og afþreyingu. Samgöngur milli hverfa eru nokkuð greiðar og hafa ný mislæg gatnamót, tvöföldun Reykjanesbrautar og opnun Ásvallabrautar haft þar mikið að segja. Í hverfinu verða tveir leikskólar og grunnskóli auk þess sem gert er ráð fyrir heilsugæslu og búsetumöguleikum fyrir eldri borgara. Framkvæmdir við lóðir í Hamranesi hófust í upphafi árs 2021 og var fyrsta skóflustungan að íbúðum Bjargs tekin þá um sumarið. Gert er ráð fyrir að frumbyggjar í Hamranesi flytji inn á þessu ári.

Ábendingagátt