Bjartir dagar 2021 – óskað eftir hugmyndum

Fréttir

Óskað er eftir hugmyndum að dagskrá Bjartra daga sem haldnir verða dagana 21.-25. apríl.

Óskað er eftir hugmyndum að dagskrá Bjartra daga sem haldnir verða dagana 21.-25. apríl í tengslum við Sumardaginn fyrsta eins og undanfarin ár. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á unglingamenningu og börn og unglingar hvött til virkrar þátttöku.

Bjartir dagar er menningarhátíð sem endurspeglar allt það fjölbreytta menningarstarf sem á sér stað í Hafnarfirði sem stofnanir, félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar standa að. Á Björtum dögum taka því fjölmargir þátt í að skapa viðburði um allan bæ. Það getur verið eitthvað sem stendur til nú þegar eða eitthvað alveg nýtt, eitthvað fyrir börn eða eitthvað fyrir fullorðna en allavega eitthvað áhugavert sem hvetur bæjarbúa til virkrar þátttöku og góðrar samveru í takt við þær sóttvarnarreglur og fjöldatakmarkanir sem verða í gildi.

Örstyrkir

Til þess að styðja við frumvæðisverkefni verður hluta af fjármagni Bjartra daga, allt að einni milljón, úthlutað til ýmissa verkefna sem fara fram á Björtum dögum. Stofnanir, félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar geta sótt um um fjármagn til verkefna sem fara fram dagana 21.-25. apríl að hámarki 100.000 kr. Beiðni um fjárframlag skal senda verkefnastjóra Bjartra daga á menning@hafnarfjordur.is fyrir 29. mars og úthlutun verður lokið fyrir 1. apríl. Við úthlutun verður tekið mið af reglum menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðar um styrki til menningarstarfsemi.

Viltu skrá viðburð til þátttöku?

Hafnarfjarðarbær heldur utan um almenna skipulagningu og samhæfingu viðburða, stendur að útgáfu dagskrár og kynnir hátíðina. Nú er um að gera að leggja höfuðið í bleyti og koma með hugmyndir að dagskrá og senda upplýsingar á menning@hafnarfjordur.is. Lokafrestur til að senda inn dagskráratriði er 12. apríl.

Ábendingagátt