Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær og hópferðafyrirtækið Teitur Jónasson ehf. hafa gert með sér samning um áætlunarakstur milli Bláfjalla og Hafnarfjarðar þegar opið er á skíðasvæðinu. Tillaga um Bláfjallarútu frá Hafnarfirði er ein af tillögum Ungmennaráðs Hafnarfjarðar sem lagðar voru fram á fundi bæjarstjórnar vorið 2020.
Hafnarfjarðarbær og hópferðafyrirtækið Teitur Jónasson ehf. hafa gert með sér samning um áætlunarakstur milli Bláfjalla og Hafnarfjarðar þegar veður leyfir og opið er á skíðasvæðinu. Tillaga um Bláfjallarútu frá Hafnarfirði er ein af tillögum Ungmennaráðs Hafnarfjarðar sem lagðar voru fram á fundi bæjarstjórnar vorið 2020 og færsluráð samþykkti fyrir árið 2021.
Stoppistöðin er Brettafélag Hafnarfjarðar
Fyrsta ferðin frá Flatahrauni kl. 15.50 þriðjudaginn 2. febrúar
Lagt er upp með að Bláfjallarútan fari eina ferð á dag frá Brettafélagi Hafnarfjarðar við Flatahraun 14 um Mjódd og Rauðavatn (háð veðri og opnun í fjallinu). Viðeigandi þótti að stoppistöð rútu í Hafnarfirði sé staðurinn þar sem vetrarstarf barna og ungmenna á snjóbrettum og hjólabrettum er í fullum gangi alla daga. Ekið verður eftir rútuáætlun skíðasvæðanna og er grunngjald kr. 3.000.- per farþega fyrir báðar leiðir. Önnur leiðin kostar kr. 2.700.- og 10 skipta kort kosta 26.000.- Gert er ráð fyrir að rútan fari frá BFH kl. 15:50 alla virka daga og kl. 12:20 um helgar. Samningur við Teit hljóðar upp á lágmarksfjölda farþega í hverja ferð og skuldbindur sveitarfélagið sig til 15.000.- kr. greiðslu fyrir hvert útkall nái fjöldinn ekki lágmarki sem er 8 manns. Ef kallað er til auka ferðar utan áætlunar skíðasvæðanna er viðmiðið 19 manns í hverri ferð. Samningurinn er ótímabundinn og uppsegjanlegur með 6 mánaða fyrirvara.
Hér má sjá fulltrúa Brettafélags Hafnarfjarðar, Hafnarfjarðarbæjar og Teits við undirritun samnings við Teit Jónasson ehf. í dag í húsnæði Brettafélagsins. F.v: Aðalsteinn Valdimarsson framkvæmdastjóri BFH, Björgvin Valdimarsson formaður stjórnar BFH, Jóhann Óskar Borgþórsson varaformaður stjórnar BFH, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar og Haraldur Teitsson framkvæmdastjóri Teits Jónassonar ehf.
„Það er ánægjulegt að sjá þessa tillögu ungmennaráðs verða að veruleika. Unga fólkið okkar veit sjálft best hvaða þjónustu vantar fyrir þau og það er okkar yfirvalda að hlusta á hugmyndir þeirra og framkvæma eftir því sem við höfum tækifæri til. Önnur hugmynd þeirra um skólahreystivöll í Hafnarfirði kom til framkvæmda í lok sumars 2020 með opnun slíkrar brautar á Hörðuvöllum. Hópur þeirra Hafnfirðinga sem stundar skíði og bretti fer ört vaxandi og það er mikilvægt að geta ýtt undir vöxtinn og greiða aðgengið að fjallinu með þessum hætti,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar við undirritun samningsins í dag.
Um Brettafélag Hafnarfjarðar
Brettafélag Hafnarfjarðar var stofnað árið 2012 og var upphaflegur tilgangur félagsins að koma upp aðstöðu innanhús til hjólabrettabrettaiðkunar. Félagið hefur vaxið hratt og er nú rekið í fjórum deildum hjólabrettadeild, snjóbrettadeild, bmx deild og fjallahjóladeild. Iðkendur félagsins sem stunda skipulagðar æfingar eru um 400 talsins á aldrinum 5 til 18 ára, en einnig sækir fjöldi barna og unglinga innanhússaðstöðuna á degi hverjum.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…