Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
BLÁR APRÍL – lífið er blátt á mismunandi hátt! Snillingar á öllum aldri í Setbergsskóla klæddust bláu í dag til vitundarvakningar um málefni barna með einhverfu auk þess að vinna með staðreyndir um einhverfu sem settar hafa verið fram.
Nemendur og kennarar í grunnskólum og leikskólum Hafnarfjarðar fögnuðu fjölbreytileikanum með því að mæta í bláu í dag á alþjóðlegum degi einhverfunnar. Á þessum degi ár hvert er fólk um allan heim hvatt til að klæðast bláu til að vekja athygli á málefnum einhverfra. Í Setbergsskóla létu starfsmenn og nemendur það ekki duga að mæta í bláu heldur unnu að fjölbreyttum verkefnum í aðdraganda dagsins þar sem m.a. var unnið með með staðreyndir sem styrktarfélag um einhverfu hefur sett fram. Efni var útbúið og skólinn skreyttur í tilefni dagsins.
Í Setbergsskóla er starfrækt sérstök einhverfudeild, námsver fyrir nemendur með einhverfu í Hafnarfirði sem hóf starfsemi haustið 2007. Námsverið starfar eftir hugmyndafræði TEACCH sem Dr. Eric Schopler hannaði og setti fram eftir áralangar rannsóknir á bestu kennsluleiðum fyrir nemendur með einhverfu. Hugmyndafræðin felur í sér skipulagða kennslu sem virkjar sjálfstæði einstaklingsins og stuðlar að því að hann verði öruggur, glaður og fær um að taka eigin ákvarðanir síðar á lífsleiðinni. Skipulögð kennsla er kerfi sem skipuleggur aðstæður, notar verkefni við hæfi og hjálpar nemandanum að skilja til hvers er ætlast af honum. Til að ná sem mestum árangri er mikilvægt að endurmeta og þróa nám og kennslu einstaklingsins. Rannsóknir á kennslu og þörfum nemenda með einhverfu sýna fram á að mikilvægt sé að nýta sér áhugasvið nemenda til að kenna hefðbundin fög eins og stærðfræði, skrift og lestur.
Með aukinni vitund og þekkingu byggjum við upp samfélag sem er betur í stakk búið til að skilja þarfir einhverfra og virða framlag þeirra til samfélagsins.
#blarapril #allirerueinstakir
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…
Nýr sex deilda leikskóli verður tekinn í notkun í Hamranesi á árinu 2025 sem og nýtt knatthús að Ásvöllum og…
Hvað er betra en að kynnast sögunni á hlaupum? Nú eru aðeins tveir dagar í Kaldárhlaupið, 10 km hlaup í…