Bleikur bær og bleikur dagur

Fréttir

Hafnarfjörður er baðaður í bleikum ljósum og ljóma þessa dagana. Tilgangurinn er afar bleikur og tileinkaður Krabbameinsfélaginu og baráttunni gegn krabbameinum í konum. Hjarta við Bókasafn Hafnarfjarðar, bleikt ráðhús, bleikur Norðurbakki, bleik kirkja, bleikur tónlistarskóli, bleik Fjörukrá og auk þess sem einhverjir húseigendur hafa farið þá leið að lýsa upp trén í garðinum sínum með bleiku ljósi. Hafnarfjarðarbæ hvetur íbúa og Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til að taka bleikan göngutúr í fallegu haustveðrinu og taka þátt í bleika deginum á miðvikudaginn.

Í ár er sérstök athygli vakin á mikilvægi aðstandenda

Bleiki dagurinn er miðvikudaginn 23. október

Á Bleika deginum, sem í ár er haldinn miðvikudaginn 23. október, eru landsmenn allir hvattir til að vera bleikir – fyrir okkur öll. Bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu. Bleikur október er árlegi árverknistími tileinkaður baráttunni gegn krabbameinum í konum. Í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að aðstandendum undir slagorðinu „Þú breytir öllu” með þökkum til þeirra sem hvorki búast við né ætlast til að fá þakkir, fólkinu sem er svo mikilvægt en á það til það að gleymast – aðstandendum. Á Íslandi greinist að meðaltali 971 kona með krabbamein á ári hverju.

Ýmsar hugmyndir að bleiku framlagi – heima og að heiman

  • Bleikt morgunkaffi
  • Bleikur hádegisverður
  • Skreyta vinnustaðinn
  • Klæðast einhverju bleiku
  • Hafa verðlaun fyrir fatnað og skreytingar

Sendið sögur og myndir

Krabbameinsfélagið hvetur alla til að senda sér skemmtilegar, bleikar myndir af sér og vinahópum eða vinnufélögum á netfangið: bleikaslaufan@krabb.is og mun félagið birta þær á facebooksíðu Bleiku slaufunnar. Merkið myndirnar #bleikaslaufan

Verum öll meðvituð!

Verum öll bleik á Bleika deginum 2024!

Ábendingagátt