Bless útilegutæki – nýtt skólaár er að hefjast
Fjöldi íbúa hefur nýtt sér þann möguleika að leggja hverskyns útilegutækjum á bílastæði við grunnskóla Hafnarfjarðar og Flensborgarskóla. Skólastarf fer á fullt á nýjan leik strax eftir helgi eða mánudaginn 15. ágúst.
Vinsamlega fjarlægið útilegutækin í síðasta lagi sunnudaginn 14. ágúst
Fjöldi íbúa hefur nýtt sér þann möguleika að leggja hverskyns útilegutækjum á bílastæði við grunnskóla Hafnarfjarðar og Flensborgarskóla. Skólastarf fer á fullt á nýjan leik strax eftir helgi eða mánudaginn 15. ágúst. Eigendur útilegutækja sem nýtt hafa sér þennan möguleika eru vinsamlega beðnir um að fjarlægja tækin í síðasta lagi sunnudaginn 14. ágúst þannig að ekki þurfi að grípa til annarra aðgerða. Strax á mánudaginn munu tækin vera fyrir.
Fyrirfram þakkir fyrir skjót viðbrögð!