Bóka- og bíóhátíð barnanna í Hafnarfirði tileinkuð Guðrúnu Helgadóttur

Fréttir

Hetjurnar úr “Víti í Vestmannaeyjum” bjóða í vítaspyrnukeppni

Bóka- og bíóhátíð barnanna í Hafnarfirði verður haldin í
þriðja skipti núna í mars. Hátíðin í ár verður helguð Guðrúnu Helgadóttur,
rithöfundi og Hafnfirðingi.  Guðrúnu þarf
vart að kynna fyrir nokkrum núlifandi Íslendingi en eftir hana liggja persónur
sem þjóðin hefur lært að elska í gegnum árin eins og Páll Vilhjálmsson,
tvíburabræðurnir Jón Oddur og Jón Bjarni og þannig mæti lengi telja en titlar
hennar telja á þriðja tug verka auk fjögra leikrita eða leikverka. Þannig
öðlaðist hún sinn sess í  sem einn
ástsælasti rithöfundur okkar tíma.

Hátíðin verður opnuð föstudaginn 16. mars. Helgina
17.-18. mars munu verða viðburðir í nokkrum stofnunum bæjarins og í Bæjarbíó.
Kennsluvikuna á eftir mun hátíðin halda áfram í leik- og grunnskólum bæjarins.
Markmiðið með Bóka- og bíóvikunni er að minna á mikilvægi lestrar og bóka og
tengsl þeirra við kvikmyndir.

Sérstök áhersla verður einnig á þá höfunda sem nú búa og
eru virkir í skrifum fyrir unga lesendur eins og Gunnar Helgason leikara og
rithöfund sem býr í Hafnarfirði. Það vill svo skemmtilega til að mynd eftir
bókinni hans Víti í Vestmannaeyjum verður frumsýnd 23. Mars næst komandi og
ætla söguhetjur úr henni að koma og bregða á leik og skora á Hafnfirska krakka
í vítaspyrnukeppni á laugardaginn kl 13:00 á undan sérstakri viðhafnar
bíósýningu á Jóni Oddi og Jóni Bjarnar sem haldið verður í Bæjarbíó kl 14:00. Ókeypis er á alla viðburði á Bóka- og bíóhátíð.

Þá mun Bergrún Íris Sævarsdóttir barnabókahöfundur frá
Hafnarfirði stýra opnunarhátíðinni en verk hennar hafa fengið mikið lof
gagnrýnenda og verðlaunatilnefningar.

Föstudagur 16. mars

Kl. 9:30 og 10:30 Opnunarhátíð í Bæjarbíó Ávarp,
upplestur, bíóbrot og tónlistaratriði fyrir elstu leikskólabörn bæjarins með
áherslu á höfundarverk Guðrúnar Helgadóttur.

Laugardagur 17. mars

Kl. 12:30 og 16:00 Tónleikar í Víðistaðakirkju Opnir
tónleikar yngri og eldri kóra á Barnakóramóti Hafnarfjarðar í Víðistaðakirkju.

Kl. 13:00 Vítaspyrnukeppni við bókasafnið Leikarar úr
Víti í Vestmannaeyjum verja.

Kl. 14:00 Bíósýning í Bæjarbíó

Sýnd verður kvikmyndin Jón Oddur og Jón Bjarni eftir
samnefndri sögu Guðrúnar Helgadóttur.

Á undan myndinni verður myndbrot úr kvikmyndinni Víti í
Vestmannaeyjum frumsýnt.

 

Alla vikuna

• Fjölbreytt dagskrá í leik- og grunnskólum.

• Útlánaleikur á bókasafninu: Allir sem taka barnabækur
að láni geta tekið þátt í útlánaleik. Verðlaun fyrir heppna lestrarhesta.

• Útstillingar á bókum og bíómyndum gerðum eftir þeim í
bókasafninu.

• Ljóð úr bókakjölum: Gestir á barna- og unglingadeild
bókasafnsins geta spreytt sig á að búa til ljóð úr bókatitlum.

 

Sunnudagur 18. mars

Kl. 11:00 Söguganga frá Gúttó

Leifur Helgason leiðir göngu um sögusvið bóka Guðrúnar
Helgadóttur á vegum Byggðasafnsins.

Kl. 14-17 Fjölskyldusmiðja í Hafnarborg

Lóa Hjálmtýsdóttir leiðir teikni- og textasmiðju.

 

Mánudagur 19. mars

Kl. 17 Bókabingó í Bókasafninu Bókavinningar í boði fyrir heppna bingóspilara.

 

Þriðjudagur 20. mars

Kl. 10:30 Bókabingó á foreldramorgni Foreldrar með ung börn og bumbur hjartanlega velkomin.

Björt í sumarhúsi Söngleikur fyrir 2. bekkinga í Bæjarbíó.

 

Fimmtudagur 22. mars

Kl. 17-18 Spunasögustund á bókasafninu Sögð verður spunasaga í samvinnu við áheyrendur sem hjálpa til við persónusköpun.

Ábendingagátt