Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Í upphafi sumars viðraði Heilsubærinn Hafnarfjörður þá hugmynd við samtökin á bak við Karlar í skúrum að sjá um smíði á bókavita sem nýtast myndi sem skiptibókamarkaður allt árið um kring. Karlarnir í skúrnum notuðu sumarið 2021 til að hanna, smíða og mála vitann með aðkomu margra aðila. Bókavitinn var opnaður formlega í dag á upphafsdegi Bóka- og bíóhátíðar barnanna 2021 í Hafnarfirði og er hann öllum opinn.
Skiptibókamarkaður sem er opinn allan sólarhringinn. Gríptu bók og gefðu aðra í staðinn
Leikskólabörn frá Víðivöllum og Álfabergi fylltu nýjan bókavita af bókum
Bókavitinn hefur verið settur upp á horni Hellisgötu og Reykjavíkurvegar, við einn af nokkrum inngöngum í Hellisgerði, skrúðgarð Hafnfirðinga. Það þótti viðeigandi á upphafsdegi Bóka- og bíóhátíðar barnanna að fá hóp leikskólabarna til að taka þátt í formlegri opnun á vitanum með því að fylla hann af bókum að heiman. Hvert barn lét sína bók í vitann og nú er hann uppfullur af ævintýrum og áhugaverðum bókum. Lestur og lesskilningur er Hafnfirðingum hugleikinn og er verkefnið liður í því að ýta enn frekar undir aðgengi að bókum. Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar eru hvattir til að nýta sér bókavitann í leit sinni að ævintýrum og nýrri þekkingu, til að grípa sér bók og gefa aðra í staðinn.
Karlar í skúrum er samfélagslegt verkefni sem Rauði krossinn hrinti af stað í upphafi árs 2018 og er nú m.a. til húsa að Helluhrauni 8 í Hafnarfirði. Verkefnið, sem er að ástralskri fyrirmynd, er vel þekkt víða um Evrópu og byggir á þeirri hugmyndafræði að karlmenn tali best saman þegar þeir eru að vinna öxl í öxl með eitthvað í höndunum. Skúrinn sjálfur er hugsaður sem öruggur og vinalegur vettvangur fyrir karlmenn frá 18 ára aldri til að hittast og vinna að skapandi og skemmtilegum verkefnum, saman eða með sjálfum sér á sínum eigin hraða og forsendum. Skúrinn að Helluhrauni er opinn alla virka daga frá kl. 10-12 auk þess sem allir virkir meðlimir í verkefninu hafa lykil og geta nýtta aðstöðuna þegar þeim hentar.
Kynslóðirnar mættust í Hellisgerði í dag í nafni læsis og bóka. Lestur er sannarlega lífsins leikur.
Bóka- og bíóhátíð barnanna, menningarhátíð fyrir börn í Hafnarfirði, er haldin vikuna 6. – 13. október. Þessa vikuna verður sérstök áhersla lögð á bækur og kvikmyndir innan leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar og skapandi og skemmtileg verkefni sem tengjast hvoru tveggja. Tilgangur hátíðarinnar er að efla áhuga barna á lestri og læsi í víðum skilningi og styður hátíðin við læsisverkefni leik- og grunnskóla bæjarins sem í gangi hefur verið síðustu misseri. Skólar og söfn bæjarins taka virkan þátt í hátíðinni með uppbroti á skólastarfi, viðburðum og smiðjum.
Dagskrá Bóka- og bíóhátíðar barnanna 2021
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í…
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2025. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum…
Hafnarfjarðarbær hefur svo gott sem lokið við LED-ljósavæðingu götulýsingar bæjarfélagsins. 95% ljósastaura nota LED-lýsingu. Víða í stofnunum bæjarins hefur LED-lýsing…