Bókun um Reykjanesbraut

Fréttir

Á fundi bæjarráðs í morgun var bókun um Reykjanesbraut samþykkt. Í bókun áréttar bæjarráð mikilvægi þess að ráðist verði í úrbætur á brautinni án tafar og skorar á samgönguyfirvöld að hefja nú þegar undirbúning að öllum framkvæmdum við brautina.

Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í morgun var eftirfarandi bókun um Reykjanesbraut samþykkt:

“Í ljósi tíðra og alvarlegra slysa á Reykjanesbraut í Hafnarfirði áréttar bæjarráð Hafnarfjarðar mikilvægi þess að ráðist verði í úrbætur á brautinni án tafar. Bæjarráð hefur þungar áhyggjur af umferðaröryggi á veginum og skorar á samgönguyfirvöld að hefja nú þegar undirbúning að öllum framkvæmdum við brautina sem hafa verið á samgönguáætlun til margra ára án fjármagns. Það er mjög aðkallandi að ljúka framkvæmdum og tryggja umferðaröryggi vegfarenda á þeim hluta brautarinnar sem liggur í gegnum Hafnarfjörð þar sem umferðarþungi hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum og fer vaxandi”.

Sjá fundargerð fundar HÉR

Ábendingagátt