Bólusetning 12-15 ára barna

Fréttir

Nú í ágúst verður boðið upp á bólusetningu gegn COVID-19 fyrir börn á aldrinum 12-15 ára. Forráðamaður sem óskar eftir bólusetningu fyrir barn sitt þarf að fylgja barni í bólusetninguna eða senda staðgengil 18 ára eða eldri með umboð. Börnum í 7. bekk sem verða 12 ára eftir 1. september býðst bólusetning síðar í haust.

Nú í ágúst verður boðið upp á bólusetningu gegn COVID-19
fyrir börn á aldrinum 12-15 ára. Forráðamaður sem óskar eftir bólusetningu
fyrir barn sitt þarf að fylgja barni í bólusetninguna eða senda staðgengil 18
ára eða eldri með umboð. Börnum í 7. bekk sem verða 12 ára eftir 1. september býðst
bólusetning síðar í haust.

Sjá tilkynningu á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Á
höfuðborgarsvæðinu verður bólusett í Laugardalshöll og forráðamenn beðnir að
koma með börn sín samkvæmt eftirfarandi skipulagi:

Mánudagur 23. ágúst Þriðjudagur 24. ágúst

2006 árgangur:

2008 árgangur:

Kl: Börn fædd í: Kl: Börn fædd í:
10.00 Janúar 10.00 Janúar
10.10 Febrúar 10.10 Febrúar
10.20 Mars 10.20 Mars
10.30 Apríl 10.30 Apríl
10.40 Maí 10.40 Maí
10.50 Júní 10.50 Júní
11.00 Júlí 11.00 Júlí
11.10 Ágúst 11.10 Ágúst
11.20 September 11.20 September
11.30 Október 11.30 Október
11.40 Nóvember 11.40 Nóvember
11.50 Desember 11.50 Desember

2007 árgangur:

2009 árgangur:

Kl: Börn fædd í: Kl: Börn fædd í:
12.40 Janúar 12.40 Janúar
12.50 Febrúar 12.50 Febrúar
13.00 Mars 13.00 Mars
13.10 Apríl 13.10 Apríl
13.20 Maí 13.20 Maí
13.30 Júní 13.30 Júní
13.40 Júlí 13.40 Júlí
13.50 Ágúst 13.50 Ágúst
14.00 September
14.10 Október
14.20 Nóvember
14.30 Desember

Bóluefnið sem verður notað er frá Pfizer/BioNTech og er það
bóluefni sem fyrst fékk markaðsleyfi, bæði fyrir fullorðna og síðar fyrir börn
á þessum aldri. Það er komin töluverð reynsla á notkun þess fyrir þennan
aldurshóp erlendis og hefur gengið mjög vel.

Eins og við aðrar bólusetningar eru algengustu aukaverkanir
óþægindi þar sem stungan var gerð og slappleiki/þreyta, hiti og verkir
(höfuðverkur eða vöðva- og liðverkir) fyrsta sólarhringinn eftir bólusetninguna,
stundum í nokkra daga. Það má nota parasetamól eða íbúprófen í skömmtum skv.
fylgiseðli við þessum aukaverkunum.

Það eru líka til sjaldgæfar aukaverkanir þar sem kemur fram
bólga í gollurshúsi (poki utan um hjartað) eða í hjartavöðvanum sjálfum, 2-3
vikum eftir bólusetninguna, oftast eftir seinni skammt og algengara hjá piltum
en stúlkum. Þótt þessar aukaverkanir geti verið óþægilegar og jafnvel
uggvekjandi, þá jafnar ástandið sig oftast með hvíld og bólgueyðandi
verkjalyfjum. Ef barn fær brjóstverk, talar um skrítinn hjartslátt eða virðist
andstutt í hvíld eftir bólusetninguna þarf að leita til læknis.

Það er verið að skoða hvort breytingar á tíðahring, bæði
litlar eða miklar blæðingar, hafi tengsl við bólusetningu með þessu bóluefni.
Stúlkur á aldrinum 12-15 ára hafa sumar þegar byrjað á blæðingum en aðrar ekki.
Það er ekki víst að allar stúlkur á þessum aldri átti sig á því ef breytingar
verða þar sem blæðingar eru yfirleitt óreglulegar fyrsta árið eftir að þær
hefjast. Eins finnst þeim mörgum óþægilegt að ræða um slíkt og láta ekki
endilega vita ef eitthvað er öðruvísi en áður. Það er því mikilvægt að þær fái
upplýsingar um að það sé rétt að ræða þetta og hafi tækifæri til að gera það,
ef ekki heima þá mögulega við skólahjúkrunarfræðing eða annan
heilbrigðisstarfsmann.

Ábendingagátt