Börn og umhverfi hjá Rauða krossinum í Hafnarfirði og Garðabæ verður haldið dagana 22, 23, 29 og 30. janúar 2019. Með fyrirvara um næga þátttöku. Námskeiðið er ætlað ungmennum fædd á árinu 2007 og eldri (12 ára og eldri). Kennsla fer fram í húsnæði Rauða krossins í Hafnarfirði og Garðabæ að Strandgötu 24 og skiptist á fjögur (4) kvöld:

  • Þriðjudagurinn 22. janúar, kl: 17:30-20 – Efni: Rauði krossinn, þroski barna, samskipti
  • Miðvikudagurinn 23. janúar, kl: 17-20 -Efni: Leikir, leikföng, umönnun  
  • Þriðjudagurinn 29. janúar, kl: 17:30-20 – Efni: Slysavarnir
  • Miðvikudagurinn 30. janúar, kl: 17-20 – Efni: Skyndihjálp

Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti sem varða umgengni og framkomu við börn. Rætt er um árangursrík samskipti, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á um­fjöllun um slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu ásamt kennslu í skyndihjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins.

Námskeiðsgjald er kr. 9.900,- og öll námskeiðsgögn eru innifalin. ATH! að taka með sér hollt og gott nesti fyrir pásu. Leiðbeinendur eru leikskólakennarar og hjúkrunarfræðingar. Þátttakendur fá viðurkenningu að námskeiði loknu. 

SKRÁNING – skráið nafn og kennitölu barnsins áður en farið er á greiðslusíðu Valitors.
ATH! Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt.  Allar nánari upplýsingar í síma 570 4220 og á hulda@redcross.is