Bréfpokar undir matarleifar í Sorpu, Góða hirðinum og þjónustumiðstöð
Sérsöfnun á matarleifum hófst á síðasta ári á suðvesturhorni Íslands sem liður í aukinni flokkun við heimili. Bréfpokum undir matarleifar var dreift frítt til íbúa samhliða nýju kerfi. Frá og með 10. janúar mun SORPA hætta dreifingu bréfpoka í verslunum en áfram munu íbúar þó geta sótt bréfpoka endurgjaldslaust á endurvinnslustöðvum SORPU, í verslun Góða hirðisins og hjá þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar.
Frá og með 10. janúar hættir Sorpa dreifingu bréfpoka í verslunum
Sérsöfnun á matarleifum hófst á síðasta ári á suðvesturhorni Íslands sem liður í aukinni flokkun við heimili. Bréfpokum undir matarleifar var dreift frítt til íbúa samhliða nýju kerfi og í helstu matvöruverslunum á síðasta ári og kann SORPA þeim verslunum sem tóku þátt í verkefninu miklar þakkir. Ljóst er að dreifingin hafi gengið vel og íbúar höfuðborgarsvæðisins sótt um 24 milljónir poka frá því verkefnið hófst. Það magn af bréfpokum ætti að duga heimilunum í eitt og hálft ár. Frá og með 10. janúar mun SORPA hætta dreifingu bréfpoka í verslunum en áfram munu íbúar þó geta sótt bréfpoka endurgjaldslaust á endurvinnslustöðvum SORPU og í verslun Góða hirðisins. Einng verður hægt að nálgast bréfpoka í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2. Samhliða því verður gjaldfrjálsri dreifingu bréfpoka í verslunum hætt.
Endurvinnlustöð Sorpu að Breiðhellu í Hafnarfirði
Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2
Árangur samræmdar flokkunar er mikill
Árangur samræmdrar flokkunar er mikill og hreinleiki matarleifanna sem íbúar skila um 98%. Enn er þó töluvert af matarleifum eftir í tunnunni fyrir blandað rusl og því til mikils að vinna að ná sem mestum matarleifum úr blönduðu tunnunni á nýju ári.