Brenniskarð 1-3

Fréttir

Á fundi Skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar  þann 6.11.2018 var samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu við lóðina að Brenniskarði 1-3 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  

Breytingin felst í að: bílastæði í kjallara Brenniskarð 1 færist undir hús við Brenniskarð 3 innan sömu lóðar.  Fyrirkomulag bílastæða innan lóðar breytist. Jafnframt er fjölgað um eina íbúð við Brenniskarð 3. 

Tillögurnar ásamt fylgigögnum verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 22.11.2018-03.01.2019.

Tillaga að deiliskipulagsbreytingu við Brenniskarð 1-3 

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu.  Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 03.01.2019.

Umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar.

Skipulagsfulltrúi.

Ábendingagátt