Breyting á deiliskipulagi 2. áfanga Hellnahrauns í Hafnarfirði – Einhella 4

Fréttir

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 20.03.2018 tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Einhellu 4 og að málsmeðferð verði í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga Hellnahrauns í Hafnarfirði.

Í deiliskipulagsbreytingunni felst stækkun og breytt lega byggingarreits lóðarinnar að Einhellu 4.

Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 8-10 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu Norðurhellu 2, frá 25.04. til 06.06. 2018.

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna. Skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 06.06.2018. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagsþjónustu.

Skipulagsfulltrúi.

Ábendingagátt