Breyting á deiliskipulagi Skarðshlíðar 3. áfanga, Hafnarfirði.

Fréttir

Skipulags- og byggingarráð  Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 3.4.2018 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Skarðshlíðar 3. áfanga í samræmi við 1. mgr. 43 gr.  skipulagslaga nr. 123/2010.

Í breytingartillögunni hefur verið dregið úr einbýlishúsalóðum og þess í stað lögð áhersla á blandaða byggð. Íbúðum fjölgað úr 88 í 120. Jafnframt er gerð breytingartillaga að legu og formi byggingarreita.

Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 23.04.2018 – 04.06.2018.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu.  Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 4. júní 2017. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.

Umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar.
Skipulagsfulltrúi.

Ábendingagátt