Breytingar á leiðum Strætó vegna framkvæmda í Lækjargötu Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær vinnur að endurnýjun í Lækjargötu í Hafnarfirði. Framkvæmdir munu hefjast mánudaginn 11.september 2017 og standa fram í desember. Lokun í Lækjargötu hefur áhrif á leiðir Strætó sem aka Lækjargötuna og aka vagnarnir hjáleiðir til og frá skiptistöðinni í Firði. Hér má sjá lista yfir allar breytingar á leiðum Strætó vegna framkvæmdanna:

· Biðstöðin á Lækjargötu verður óvirk fyrir allar leiðir.
· Leið 1 ekur Strandgötu í stað Lækjargötu og Hringbrautar.
Biðstöðvar á Hringbraut verða óvirkar fyrir leið 1 en er farþegum bent á að taka leið 21 af Hringbraut í Fjörð sem tengingu við leið 1. Leið 1 mun einnig stöðva á biðstöðvum í Strandgötu, við Fjörukrána og Flensborgartorg.
· Leið 21 ekur Hringbraut og Strandgötu í stað Lækjargötu
Biðstöðvar á Hringbraut verða virkjaðar fyrir leið 21.
· Leið 33 ekur Hringbraut og Strandgötu í stað Lækjargötu
Biðstöðvar á Hringbraut verða virkjaðar fyrir leið 33.
· Leið 34 Strandgötu og Hringbraut í stað Lækjargötu
Biðstöð við Grænukinn verður virkjuð fyrir leið 34 og stoppa vagnarnir á þeirri biðstöð.
· Leið 43 ekur Hringbraut og Strandgötu í stað Lækjargötu
Biðstöðvar á Hringbraut verða virkjaðar fyrir leið 43.
· Leið 44 ekur Strandgötu og Hringbraut að Selvogsgötu
Biðstöðvarnar við Grænukinn og Flensborg verða óvirkar. Farþegar geta náð leið 44 á biðstöðinni í Selvogsgötu.