COVID-19 hraðpróf í boði í Hafnarfirði

Fréttir

Frá og með föstudeginum 17. desember verður hægt að fara í hraðpróf vegna COVID-19 í Hafnarfirði. Í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ hefur TestCovid.is, sem er hluti af Öryggismiðstöðinni, sett upp hraðprófunarstöð að Reykjavíkurvegi 76-78. Hraðprófunarstöðin verður í stærra lagi og kemur til með að anna allt að 1000 prófum á dag. Opið verður alla daga frá kl. 8-16 og hefur þegar verið opnað fyrir bókanir.

Frá og með morgundeginum, föstudeginum 17. desember, verður hægt að fara í hraðpróf vegna COVID-19 í Hafnarfirði. Í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ hefur TestCovid.is, sem er hluti af Öryggismiðstöðinni, sett upp hraðprófunarstöð að Reykjavíkurvegi 76. Hraðprófunarstöðin verður í stærra lagi og kemur til með að anna allt að 1000 prófum á dag. Opið verður alla daga frá kl. 8-16 og hefur þegar verið opnað fyrir bókanir á testcovid.is

IMG_1459

Reykjavíkurvegur 76 er nýja stöðin í Hafnarfirði

Öryggismiðstöðin er eitt þeirra fyrirtækja sem rekur hraðprófunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið tugþúsunda hraðprófa á þremur prófunarstöðum. Stöðin á Reykjavíkurvegi 76 er fjórða stöðin. Um er að ræða svokölluð antigen-hraðpróf og eru niðurstöður úr þeim oftast fáanlegar innan hálftíma frá því að prófið er tekið. Niðurstöður slíkra prófa eru á tímum samkomutakmarkana krafa á öllum samkomum þar sem 50 eða fleiri koma saman auk þess sem framvísun á neikvæðum niðurstöðum úr slíku prófi getur verið krafa í löndum sem ferðast er til.

IMG_1462Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri mætti í hraðpróf í morgun og hitti þar Ómar Brynjólfsson framkvæmdastjóra AVIÖR.  Stöðin verður opnuð á morgun en þegar hefur verið opnað fyrir bókanir.   

Um hraðpróf Testcovid.is

  • Clinitest hraðprófið frá Siemens hefur sýnt fram á 99,22% áreiðanleika
  • Prófunin er vottuð af heilbrigðisráðuneytinu og unnin í samstarfi við Sameind rannsóknarstofu
  • Hraðprófið er ókeypis
  • Hægt er að velja um fjórar staðsetningar – nýjasta viðbótin er í Hafnarfirði
  • Vinsamlegast verið á staðnum 5-10 mín fyrir bókaðan tíma
  • Lengd hraðprófsins og biðin eftir niðurstöðu tekur um 15-30 mínútur
  • QR-kóði berst í tölvupósti sem sýna þarf á tökustað þegar mætt er í hraðprófið
  • 15 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með forráðamanni

Allar nánari upplýsingar um framkvæmd, fyrirkomulag og bókanir má finna hér

Sjá staðsetningu í Hafnarfirði

Ábendingagátt