COVID19 er ekki lokið en lítið um stórar aðgerðir

Fréttir

Í þeim aðgerðum sem voru í gangi vegna COVID-19, spiluðu sveitarfélögin stórt hlutverk og voru sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu alls ekki undanþegin. Þessa dagana er verið að draga lærdóm af aðgerðunum og til að vera betur undirbúin fyrir næstu vá.

 

Upplýsingafulltrúar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæði

COVID-19 er ekki lokið þó lítið sé um stórar aðgerðir hér á Íslandi í dag

Í þeim aðgerðum sem voru í gangi vegna COVID-19, spiluðu sveitarfélögin stórt hlutverk og voru sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu alls ekki undanþegin. Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru með starfandi neyðarstjórn sem voru virkar þegar þess þurfti.  Hlutverk þeirra er að halda uppi þjónustu og starfsemi sveitarfélaganna á almannavarnatímum.

Tilkynning á Facebooksíðu Slökkviliðsins 

Til að halda uppi þjónustu og starfsemi miðað við þær reglugerðir sem voru í gildi og samhæfa aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu, funduðu sviðstjórar skóla- og frístundasviða, velferðarsviða og fulltrúar íþróttastarfs og menningar reglulega og eins oft og þurfti með almannavörnum á höfuðborgarsvæðinu. Fundað var í hvert skipti sem ný reglugerð leit dagsins ljós en þær voru alls 166 á tímabilinu 27. janúar 2020- 24. febrúar 2022.  Upplýsingafulltrúar sveitarfélagana voru í lykilhlutverki við að koma upplýsingum áleiðis til íbúa, starfsfólks og annarra aðila.

Lærdómur dreginn af aðgerðunum

Þessa dagana er verið að draga lærdóm af aðgerðunum og til að vera betur undirbúin fyrir næstu vá. Á meðfylgjandi mynd er starfsfólk almannavarna og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins ásamt upplýsingafulltrúum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu eftir rýnifund í morgun. Það sem upp úr stendur er ótrúleg elja og útsjónarsemi starfsfólks sveitarfélaga við krefjandi aðstæður og eiga þau hrós skilið fyrir það.

Ábendingagátt