Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gera enn frekari tilslakanir á samkomutakmörkunum sem tóku gildi 28. ágúst sl. Grímuskylda á viðburðum utandyra hefur verið felld brott og skýrar kveðið á um heimild til að halda einkasamkvæmi í veislusölu og sambærilegu húsnæði fram yfir miðnætti. Ráðherra hefur einnig ákveðið nánari útfærslu á notkun hraðprófa á viðburðum.
Sjá tilkynningu á vef Stjórnarráðsins
Grímuskylda hefur almennt ekki verið utandyra nema á viðburðum svo sem íþróttakappleikjum þar sem gestir eru sitjandi en ekki hægt að virða eins metra nálægðarmörk. Með reglugerðinni sem tók gildi 28. ágúst, er ekki lengur þörf á að bera grímu á viðburðum sem fara fram utandyra, að því tilskyldu að ekki séu fleiri en 200 einstaklingar í sama rými.
Nauðsynlegt þótti að skýra nánar í reglugerð heimild til að halda einkasamkvæmi fram yfir miðnætti, í húsnæði þar sem vínveitingaleyfi er ekki nýtt þótt það kunni að vera til staðar og er það gert hér með. Hér er átt við samkvæmi þar sem skilgreindur hópur skráðra boðsgesta kemur saman, s.s. í brúðkaupum eða afmælisveislum.
Með reglugerðarbreytingunni er nánar kveðið á um útfærslu á notkun hraðprófa á viðburðum, en reglugerðarákvæði um notkun hraðprófa (3. mgr. 3. gr.) tekur gildi 3. september. Í samræmi við það sem fram kom í tilkynningu Stjórnarráðsins um boðaðar tilslakanir og notkun hraðprófa hefur um helgina verið fundað með hagsmunaaðilum sem standa fyrir stórum viðburðum til samráðs um frekari útfærslu, s.s. fulltrúum íþróttahreyfingarinnar, samtökum atvinnuveitenda í sviðslistum og fleiri aðilum. Nú liggur fyrir ákvörðun um að á viðburðum þar sem hraðpróf eru nýtt verður fólki heimilt að taka niður grímu þegar það situr. Enn fremur verður börnum á leik- og grunnskólaaldri heimilt að mæta á slíka viðburði án þess að krafist sé niðurstöðu úr hraðprófi.
Stefnt er að því að framkvæmd hraðprófa eins og hér um ræðir verði komin á fullt skrið um miðjan september og að prófin verði þá gjaldfrjáls. Í undirbúningi er að leita samninga um framkvæmdina.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…