Dagur íslenskrar tungu

Fréttir

16. nóvember er dagur íslenskrar tungu. Dagurinn hefur um árabil verið afar hátíðlegur og viðburðaríkur og þá sér í lagi í hafnfirskum leik- og grunnskólum.  Á þessum degi hefst ræktunarhluti Litlu og Stóru upplestrarkeppninnar auk þess sem mörg önnur skemmtileg verkefni eru sett formlega.

16. nóvember er dagur íslenskrar tungu og er dagurinn jafnframt fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar skálds. Dagurinn hefur um árabil verið afar hátíðlegur og viðburðaríkur og þá sér í lagi í hafnfirskum leik- og grunnskólum.  Á þessum degi hefst ræktunarhluti Litlu og Stóru upplestrarkeppninnar auk þess sem mörg önnur skemmtileg verkefni eru sett formlega.

Sérstök rækt við upplestur og framsögn

Stóra upplestrarkeppnin fer af stað í 23. sinn í Hafnarfirði sem er vagga verkefnisins. Verkefnið varð með árunum að landsverkefni og er nú svo komið að nær allir skólar á landinu taka árlega þátt. Stóra upplestrarkeppnin er ætluð nemendum í 7. bekkjum grunnskólanna. Keppnin felst í því að allir nemendur leggja sérstaka rækt við upplestur og framsögn fram að lokahátíð keppninnar sem haldin verður í mars eða apríl 2019 í Hafnarborg í Hafnarfirði. Þar mæta til leiks tveir fulltrúar frá hverjum skóla og lesa þar bæði ljóð og texta sem valdir hafa verið af sérstakri nefnd.  Allir nemendur í árganginum fá viðurkenningarskjal í lok ræktunartímabilsins. Á Degi íslenskrar tungu hefst einnig smásagnasamkeppni meðal nemenda í 8. – 10. bekkjum grunnskóla Hafnarfjarðar og verða úrslit kynnt á fyrrgreindri lokahátíð.  Að þessu sinni hafa nemendur val um að skrifa annaðhvort um  galdra eða heilbrigði. Samhliða hefst  samkeppni um mynd á boðskort á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar. Samkeppnin er árviss í 6. bekkjum og hefur þátttakan ávallt verið mjög góð og mörg listaverkin hafa skilað sér á boðskortin.

Að verða betri í lestri í dag en í gær

Litla upplestrarkeppnin er nýrri af nálinni en sú stóra og er ætluð 4. bekkingum í grunnskólunum. Hún verður nú sett formlega í níunda sinn. Keppnin byggir á sömu hugmyndafræði og sú Stóra en er aðlöguð að yngri nemendum. Hún tekur á framsögn og upplestri en er með aðrar áherslur. Þarna eru allir með og hugtakið keppni í þessu verkefni snýst eingöngu um að verða betri í lestri í dag en í gær.  Í apríl 2019 eru svo haldnar hátíðir innan skólanna og fá foreldrar sérstakt boð auk þess sem nemendur fá allir viðurkenningarskjal.  Þetta þróunarverkefni hófst líka í Hafnarfirði en í dag taka um 3000 nemendur á landsvísu þátt.  Síðastliðið vor voru haldnar 17 lokahátíðir í Litlu upplestrarkeppninni í grunnskólum Hafnarfjarðar. 

Nánari upplýsingar má fá hjá hverjum skóla fyrir sig og hjá skrifstofu fræðslu- og frístundaþjónustu Hafnarfjarðar en á vegum hennar annast Ingibjörg Einarsdóttir , fyrrverandi skrifstofustjóri Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, verkefnisstjórn þessara verkefna. 

Ábendingagátt