Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur þann 6. febrúar ár hvert. Í aðdraganda dagsins og á deginum sjálfum leitast starfsfólk og nemendur leikskólanna í Hafnarfirði við að varpa verðskulduðu ljósi á það mikla og góða starf sem fram fer innan leikskóla landsins. Faglegu starfi sem foreldrum og forsjáraðilum er vel sýnilegt alla daga.
Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur þann 6. febrúar ár hvert. Í aðdraganda dagsins og á deginum sjálfum leitast starfsfólk og nemendur leikskólanna í Hafnarfirði við að varpa verðskulduðu ljósi á það mikla og góða starf sem fram fer innan leikskóla landsins. Faglegu starfi sem foreldrum og forsjáraðilum er vel sýnilegt alla daga. Starfsfólk leikskólanna mótar framtíðina með uppbyggjandi og styðjandi starfi og starfsumhverfi fyrir börnin okkar þar sem fagmennska, þróun, vöxtur og vellíðan ræður för.
Til stóð að bæjarstjóri, Valdimar Víðisson, myndi heimsækja leikskólann Hlíðarberg í tilefni dagsins ti lað kynan sér starfsemin skólans og hitta börnin en rauð veðurviðvörun hamlaði för og því þarf að finna annan góðan dag fyrir heimsóknina. Á degi leikskólans er vel við hæfi að fagna þeim tímamótaskrefum og breytingum sem leikskólastarfið og starfumhverfi leikskólanna hefur tekið síðustu misserin. Árangurinn er augljós. Leikskólar Hafnarfjarðar eru fullmannaðir og staðan með allra besta móti.
„Mikilvægur grunnur og vegvísir barna okkar til framtíðar er lagður innan leikskóla landsins með faglegu og skapandi starfi,“ segir Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla hjá Hafnarfjarðarbæ. Jenný vann sem leikskólakennari og leikskólastjórnandi í 21 ár áður en hún byrjaði í núverandi starfi fyrir rúmum áratug og er hún nú tengiliður leikskólastjóra og starfsfólks 18 leikskóla í bænum við miðlægan stuðning á sviði mennta og lýðheilsu. „Ég á í miklu og virku samtali og samstarfi við kollega á sviðinu og m.a. þar kvikna hugmyndir að framþróun, lausnum og leiðum sem eru málaflokknum til framdráttar. Hafnarfjarðarbær er leiðandi á svo mörgum sviðum og þar held ég að þessi virka hlustun skipti miklu máli og að láta verkin tala.”
Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir
Hafnarfjarðarbær hefur hin síðustu ár stigið tímamótaskref í eflingu og þróun á leikskólastarfi sveitarfélagsins meðal annars með ákvörðun um aukinn sveigjanleika og aukið samræmi milli fyrstu skólastiganna. Þannig hefur leikskólastarfið verið fært nær starfi grunnskólanna bæði í skipulagi skólaársins og vinnutíma. “Mikil vinna var unnin við útfærslu aðgerða með öllum hlutaðeigandi aðilum þ.m.t. Félagi leikskólakennara. Þegar samþykkt var árið 2019 að eitt leyfisbréf gilti til kennslu á bæði leik- og grunnskólastigi þá fórum við að upplifa flutning á milli skólastiga og fækkun á fagfólki innan leikskólanna. Við höfum um árabil veitt styrki og stuðning til réttindanáms í faginu og margir búnir að nýta sér þann möguleika. Það hefur hjálpað mikið en ljóst að mikilvægt var að stíga enn stærri skref til að snúa þróuninni við,” segir Jenný. Markmiðið með aðgerðum sveitarfélagsins hin síðustu ár hefur verið skýrt, að fjölga fagfólki í leikskólum bæjarins og jafna starfsaðstæður leik- og grunnskóla. Nýtt skipulag fyrir leikskóladaginn í Hafnarfirði tók gildi frá og með 1. september 2024. Starfsemi innan leikskóladagsins er nú tvíþætt með fagstarfi og frjálsum tíma, leikskólagjöld lækkuðu í takti við styttri og sveigjanlegan dvalartíma, leikskóladagatalið varð með innleiðingunni 180 dagar og aðrir dagar sérstakir skráningardagar.
Um Dag leikskólans
Félag leikskólakennara, menntamálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli standa fyrir deginum en þann 6. febrúar árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara sín fyrstu samtök. Deginum er einnig ætlað að vekja athygli á stöðu leikskólans, gildi hans fyrir þjóðarauð og alla menningu. Dagurinn er haldinn hátíðlegur um land allt til að vekja sérstaka athygli á leikskólastiginu, mikilvægi þess og gildi fyrir fjölskyldur í landinu og fyrir íslenskt atvinnulíf.
Allt um leikskólana okkar
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…