Dagur Norðurlanda

Fréttir

Fánum Norðurlandanna var flaggað við bæjarmörkin í tilefni af degi Norðurlanda – degi norræns samstarfs og vinarhugar  – Norræna félagið á Íslandi verður 103 ára í ár.

Dagur Norðurlanda – dagur norræns samstarfs og vinarhugar – er í dag 23. mars!

Hafnarfjörður á vinabæi um víða veröld og gerðist aðili að norrænu vinabæjarkeðjunni með Frederiksberg í Danmörku, Uppsala í Svíþjóð, Bærum í Noregi og Hämeenlinna í Finnlandi árið 1951. Þá á Hafnarfjörður vinabæina Tvöroyori í Færeyjum og Illulissat í Grænland. Samvinna á milli bæjanna byrjaði eftir heimsstyrjöldina síðari þegar þeim fannst þörf á að styrkja sambandið á milli Norðurlandaþjóðanna.

Fánum Norðurlandanna var flaggað við ráðhús Hafnarfjarðar, Strandgötu 6, í tilefni af 103 ára afmæli Norræna félagsins.

Í dag leggja þessir vinabæir aðallega áherslu á menningarleg samskipti, íþrótta- og viðskiptaleg tengsl og hittast reglulega á vinabæjarmótum sem haldin eru annað hvert ár. Mótin samanstanda af uppákomum æskulýðs-, íþrótta og menningarhópa frá bæjunum auk ráðstefna og málþinga um hin ýmsu sameiginlegu málefni norrænu bæjanna. Annað hvert ár gefst ungu fólki í Hafnarfirði á aldrinum 16-18 ára kostur á að sækja um þátttöku í vinabæjarmóti sem flakkar á milli vinabæja. Næsta vinabæjarmót verður haldið á næsta ári, í maí 2026.

Ábendingagátt