Draumaferð á Rey Cup með viðkomu í Hafnarfirði

Fréttir

Fjarlægur draumur 15 drengja á aldrinum 12-15 ára frá Got Agulu í Kenía um þátttöku á fótboltamóti á Íslandi varð að veruleika.  Hópinn, sem kom til Íslands á laugardag, kom í heimsókn í ráðhús Hafnarfjarðar í dag.

Draumaferðin frá Got Agulu
í Kenía á Rey Cup í Reykjavík – með viðkomu í Hafnarfirði

Mikil fagnaðarlæti brutust út í Got Agulu í Kenía þegar
ljóst var að fjarlægur draumur 15 drengja á aldrinum 11-14 ára um þátttöku á
fótboltamóti á Íslandi varð að veruleika. Drengjalið skólans hefur æft stíft í
vetur í von um að tækist að láta drauminn rætast og eftirvæntingin í þeirra
hópi og stemningin í þorpinu fyrir ferðalagi þeirra var því mikil.  Hópurinn kom til Íslands á laugardag ásamt þremur
fararstjórum og verður á Íslandi til 30. júlí. Bæjarstjóri Rósa Guðbjartsdóttir
bauð hópnum í heimsókn í ráðhúsið í dag og bauð hópinn hjartanlega velkominn
til Hafnarfjarðar og Íslands.

Stuðningur og velvilji fjölda aðila gerði drauminn að veruleika 

Undirbúningur hefur staðið yfir í á annað ár og verkefnið
notið mikils stuðnings og velvilja frá fjölda aðila og allir sem koma að
skipulagningu og framkvæmd Rey Cup hafa sýnt því bæði áhuga og gert allt til að
láta verkefnið ganga upp, m.a. með niðurfellingu þátttökugjalda o.fl Fjársöfnun
til að safna nægilega miklum peningum til að greiða fyrir ferðalag liðsins til
Íslands var hrint af stað í maí á og á nokkrum vikum tókst að safna nægilegu fé
frá einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum sem slógust í för
með hinu frábæra liði #TeamGotAgulu. Hafnarfjarðarbær hefur stutt vel við verkefnið og boðið
hópnum gistingu í skóla og aðra aðstoð og búið er að skipuleggja dagskrá fyrir
hópinn frá upphafi ferðar til heimferðardags. Íþróttafélögin í Hafnarfirði hafa
líka stutt við verkefnið og boðið fram aðstoð sína og er meðal annars vonast
til að hægt verði að spila vináttuleiki við bæði FH og Hauka fyrir utan hina
skipulögðu mótsdagskrá.

Enginn áður ferðast út fyrir sýslumörkin

Enginn drengjanna hefur ferðast út fyrir sýslumörkin áður og
því er ferð út fyrir landsteinana og alla leið á íþróttamót með jafnöldrum
þeirra á Íslandi draumur af þeirri stærðargráðu sem við er búum við allt aðrar
aðstæður og kjör getum vart ímyndað okkur. Á síðustu 10 árum hafa hjónin og Hafnfirðingarnir, Paul
Ramses Odour og Rosmary Atieno, haldið úti verkefni sem miðar að því að byggja
og koma á fót leik- og grunnskóla í þorpinu Got Agulu í Kenía en þaðan eru þau
bæði upprunnin. Með samhentu átaki og mikilli vinnu tókst þeim að safna
fjármagni til að byggja og hefja starfsemi leikskóla í þorpinu árið 2012 og
grunnskólinn tók til starfa í ágúst 2015. Samtals eru 270 nemendur í skólanum, sem ber nafnið Verslo,
þar sem nemendur og kennarar Verslunarskólans hafa stutt veglega við verkefnið.
Verkefnin hafa notið stuðnings fjölda einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka
á Íslandi og hafa Íslendingar meðal annars starfað með þeim að uppbyggingu
skólastarfsins.

GotAgulu

Engin skipulögð íþróttastarfsemi en mikill áhugi á knattspyrnu

Í Got Agulu er engin skipulögð íþróttastarfsemi, en mikill
áhugi á knattspyrnu. Undanfarið hefur því verið unnið að því að koma á fót
íþróttafélagi í þorpinu og hafa starfsmenn grunnskólans verið krökkunum til
leiðsagnar og stuðnings í því verkefni. Nú þegar hafa nokkur íslensk
íþróttafélög veitt þeim mikilvægan stuðning og hvatningu og sent þeim
nauðsynlegan búnað, s.s. takkaskó, bolta og búninga. Reglulegar æfingar hófust
fljótlega og fyrir um tveimur árum kom upp þessi hugmynd að sækja um
þátttökurétt fyrir eitt af liðunum þeirra á ReyCup sem er alþjóðlegt
knattspyrnumót sem haldið er árlega á Íslandi. Nú er þessi draumur orðinn að veruleika. 

Fylgjast má með ferðalagi drengjanna frá Got Agulu HÉR en ferðalagið hefur verið ævintýri líkast og uppákomurnar margar og mis-erfiðar. 

Ábendingagátt