Drög að aðgerðaáætlun gegn hávaða fyrir 2018-2023

Fréttir

Gerð aðgerðaáætlunar gegn hávaða er hluti af tilskipun Evrópusambandsins um umhverfishávaða (2002/49/EC), sem var innleidd á Íslandi með reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir nr. 1000/2005 og hefur það að markmiði að draga úr hávaða og óæskilegum áhrifum hans. Íbúar eru hvattir til að kynna sér áætlunina og senda athugasemdir, ef einhverjar eru.

Hafnarfjarðarbær kynnir bæjarbúum drög að aðgerðaáætlun gegn hávaða fyrir árin 2018 til 2023.

Gerð aðgerðaáætlunar gegn hávaða er hluti af tilskipun Evrópusambandsins um umhverfishávaða (2002/49/EC), sem var innleidd á Íslandi með reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir nr. 1000/2005 og hefur það að markmiði að draga úr hávaða og óæskilegum áhrifum hans. Aðgerðaáætlunin er byggð á niðurstöðum kortlagningar hávaða frá árinu 2017, ásamt hávaðakortum sem sýna hljóðstig í 4 m hæð yfir jörðu. 

Drög að aðgerðaráætlun má nálgast HÉR

Íbúar eru hvattir til að kynna sér áætlunina og senda athugasemdir, ef einhverjar eru, til Hafnarfjarðarbæjar, Helga Stefánsdóttur, í gegnum netfangið helgas@hafnarfjordur.is  

Hafnarfjarðarbær mun að loknum kynningartíma taka allar athugasemdir sem borist hafa til umfjöllunar og gera breytingar á áætluninni ef ástæða þykir til. Gert er ráð fyrir því að áætlunin liggi svo fyrir í haust eftir staðfestingu bæjarstjórn. Áætlunin er til kynningar til 20. janúar nk. og geta bæjarbúar á þeim tíma gert athugasemdir við hana.

 

 

Ábendingagátt