Einivellir 3

Fréttir

Hafnarfjarðarbær auglýsir fjölbýlishúsalóðina að Einivöllum 1-3 lausa til úthlutunar.

Hafnarfjarðarbær auglýsir fjölbýlishúsalóðina að Einivöllum 1-3 lausa til úthlutunar.

Lóðin er 6967 m2 að stærð og nýtingarhlutfallið allt að 0,6  Á lóðinni er gert ráð fyrir allt að 45 íbúðum í þremur húsum.  Stærðardreifing íbúða skal vera nokkuð jöfn.

Verð pr. íbúð kr 3.484.642 m.v. heildarstærð húss 4180 m2.  Ef mannvirki er stærra þá þarf að greiða fyrir umframfermetra skv. gildandi  gatnagerðargjaldskrá við samþykkt á byggingaráformum. Gatnagerðargjald vegna umframfermetra er kr. 29.836 m2. Framangreind verð eru m.v. byggingarvísitölu í júlí 2015.

Upplýsingar um þjónustugjaldskrá skipulags- og byggingarfulltrúa er að finna hér.

Hér er hægt að nálgast úthlutunarskilmála

Umsóknum skal skila inn rafrænt í gegnum 

Mínar síður
 á heimasíðu bæjarins og umsóknarfrestur er til  5.september 2015.

 Aðstoð við skráningu er hægt að fá hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðar í síma 585-5500.

Ábendingagátt