Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hæfingarstöðin í Bæjarhrauni er þátttakandi í Nordplus verkefni um hugmyndafræði og nálgunarleiðir í þjónustu við fatlað fólk. Um er að ræða tveggja ára samstarfsverkefni milli þriggja þjóða, þ.e.a.s. Íslands, Litháen og Noregs sem ber yfirskriftina „Something common – something different“ eða „Eitthvað sameiginlegt – eitthvað öðruvísi“.
Hæfingarstöðin í Bæjarhrauni er þátttakandi í Nordplus verkefni um hugmyndafræði og nálgunarleiðir í þjónustu við fatlað fólk. Um er að ræða tveggja ára samstarfsverkefni milli þriggja þjóða, þ.e.a.s. Íslands, Litháen og Noregs sem ber yfirskriftina „Something common – something different“ eða „Eitthvað sameiginlegt – eitthvað öðruvísi“. Það eru mannréttindi að geta átt tjáskipti við aðra.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnun (WHO, 2018) er meira en einn milljarður, eða um 15% manna í heiminum með fötlun og að mati Sameinuðu þjóðanna eru fatlað fólk stærsti minnihlutahópur heims. Það þarf stöðugt að skapa og þróa nýjar þjónustuleiðir til þess að allir fái tækifæri til að lifa innihaldsríku og sjálfstæðu lífi. Samstarf Íslands, Litháen og Noregs í þessu verkefni hefur í grunninn snúið að því að deila reynslu og þekkingu um nýja tækni og möguleika og þannig hafa m.a. verið kynntar ýmsar áhugaverðar þjónustuleiðir. Hópurinn í heild hefur fengið kynningar á ólíkri hugmyndafræði og fjölbreyttum tjáskiptaleiðum ásamt því að kynnast þeirri nýsköpun sem er að eiga sér stað í tjáskiptatækninni s.s. sértækar tjáskiptatölvur. Markmiðið með þessu verkefni er að skiptast á reynslu og þekkingu hvað varðar nálgunarleiðir sem notaðar eru á hinum ýmsu þjónustustöðum.
Fyrsti hluti samstarfsverkefnis var haldinn dagana 6. – 10. mars hér í Hafnarfirði með heimsókn tólf samstarfsaðila frá Litháen og Noregi, þar að meðal þriggja einstaklinga með stuðningsþarfir. Í upphafi heimsóknar fékk hópurinn kynningu frá Hrönn Hilmarsdóttur, deildarstjóri þróunar og reksturs í málaflokki fatlaðs fólks hjá Hafnarfjarðarbæ, um þjónustu sveitarfélagsins við fatlað fólk. Næst fékk hópurinn kynningu á tjáskiptaþjálfun í Hæfingarstöðinni, Snoezelen hugmyndafræðinni, Intensive Interaction (áköf samskipti) og Þjónandi leiðsögn (GTI) ásamt öðrum starfsháttum og skipulagi þar. Einnig kom starfsmaður frá Öryggismiðstöðinni, Hrönn Birgisdóttir iðjuþjálfi, og kynnti ýmis hjálpartæki og leiðbeiningar varðandi notkun á tjáskiptatölvum. Til viðbótar var hópunum boðið á kynningar á ýmsum þjónustustöðum bæjarins sem og annarstaðar á höfuðborgarsvæðinu. Annar hluti verkefnisins mun fara fram í Litháen nú í sumar þar sem einn þjónustunotandi frá Hæfingarstöðinni og þrír starfsmenn fá kynningu m.a. á hugmyndafræði og nálgunarleiðum sem notaðar eru þar í landi. Þriðji og síðasti hluti verkefnisins verður svo í haust og felur í sér heimsókn til Noregs.
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…