Eldhætta vegna veðurs

Fréttir

Vegfarendur beðnir um að fara varlega við Hvaleyrarvatn og svæðin í kring vegna eldhættu þar sem gróður er víða þurra vegna veðurs.

Vegna veðursins að undanförnu er gróður víða þurr og því eru vegfarendur beðnir um að fara varlega við Hvaleyrarvatn og svæðin í kring vegna eldhættu. Miðað við áframhaldandi veðurblíðu mun eldhættu aukast út vikuna og paradísin okkar Hafnfirðinga er því í verulegri hættu ef ekki verður farið varlega. Kveikjum ekki eld og skiljum einnota grillið eftir heima.

Ábendingagátt