Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Verklegar framkvæmdir við endurheimt votlendis í Krýsuvíkur- og Bleiksmýri hófust í gær og ná þær yfir um sextíu hektara svæði. Votlendissjóður hefur með útreikningum sínum áætlað að umræddar framkvæmdir bindi um 1.100 tonn af kolefni í jörðu sem nemur akstri 120 fólksbíla á ársgrundvelli.
Verklegar framkvæmdir við endurheimt votlendis í Krýsuvíkur- og Bleiksmýri hófust í vikubyrjun og ná þær yfir um sextíu hektara svæði. Framkvæmdum í Bleiksmýri lauk í gær og hefjast framkvæmdir í Krýsuvíkurmýri í dag. Votlendissjóður hefur með útreikningum sínum áætlað að umræddar framkvæmdir bindi um 1.100 tonn af kolefni í jörðu sem nemur akstri 120 fólksbíla á ársgrundvelli. Talið er að um 66% af losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi komi frá röskuðu votlendi og því um að ræða mjög mikilvægt samfélagslegt verkefni.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti á fundi sínum 11. september síðastliðinn beiðni Votlendissjóðs um framkvæmdaleyfi sem snýr að endurheimt votlendis í Krýsuvík. Framkvæmdir við endurheimt eru þegar hafnar og ná þær annars vegar til Krýsuvíkurmýri og hins vegar Bleiksmýri. Í Krýsuvíkurmýri er um að ræða nýja framkvæmd við að færa land í fyrra horf. Í Bleiksmýri er aftur á móti um að ræða viðhald á fyrri aðgerð við endurheimt sem framkvæmd var árið 2016 samkvæmt samningi Landgræðslunnar og Hafnarfjarðarbæjar. Með samningi Votlendissjóðs við Landgræðsluna var forræði yfir verkefninu fært til Votlendissjóðs sem er jafnframt framkvæmdaaðili endurheimtar á svæðinu.
Liður í aðgerðum sveitarfélagsins
Þessi framkvæmd talar í takt við þær hugmyndir og aðgerðir sem lagðar eru til í umhverfis- og auðlindastefnu Hafnarfjarðarbæjar sem samþykkt var í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 18. maí 2018. Yfirlýst markmið stefnunnar er að tryggja öllum íbúum Hafnarfjarðar heilnæmt og öruggt umhverfi til lífs, leiks og starfs og skal taka tillit til hennar í allri starfsemi sveitarfélagsins. Þannig vill Hafnarfjarðarbær m.a. vera í fararbroddi í sjálfbærni og umhverfismálum, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og myndunar úrgangs.
Sjá umhverfis- og auðlindastefnu Hafnarfjarðarbæjar
Ljósmynd sem fylgir frétt: Votlendissjóður
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…