Endurskinsmerki aðgengileg fyrir alla áhugasama

Fréttir

Endurskinsmerki frá Heilsubænum Hafnarfirði eru nú aðgengileg í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar og í Bókasafni Hafnarfjarðar fyrir áhugasama á öllum aldri. Merkin voru framleidd og afhent sem gjöf til allra sex ára barna haustið 2019 þegar grunnskólaganga þeirra hófst. Eftirspurn og áhugi varð til þess að ákveðið var að framleiða fleiri endurskinsmerki sem nú eru öllum aðgengileg. 

Endurskinsmerki frá Heilsubænum Hafnarfirði eru nú aðgengileg í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar og í Bókasafni Hafnarfjarðar fyrir áhugasama á öllum aldri.  Endurskinsmerkin voru framleidd og afhent sem gjöf til allra sex ára barna haustið 2019 þegar grunnskólaganga þeirra hófst. Eftirspurn og áhugi varð til þess að ákveðið var að framleiða fleiri endurskinsmerki sem nú eru öllum aðgengileg. Heilt yfir þá er markmið með greiðu aðgengi að endurskinsmerkjum að auka öryggi allra í umferðinni og auka sýnileika Hafnfirðinga og vina Hafnarfjarðar á ferðum sínum  um bæinn.

Foreldrar og forráðamenn eiga að vera fyrirmyndir barna sinna

Nú er dagurinn farinn að styttast og nauðsynlegt að huga að þeim hættum sem myrkrið getur haft í för með sér. Endurskinsmerki á fötum og ljós á hjólum auka öryggi og sýnileika og skipta gríðarlega miklu máli í þeim aðstæðum sem skapast yfir vetrarmánuðina, í myrkri og hálku. Lögreglan minnir reglulega á nauðsyn þess að nota endurskinsmerki og hvetja forráðamenn barna markvisst til að tryggja endurskinsnotkun gagngert til að auka öryggi og sýnileika í umferðinni. Hvatningin nær einnig til fullorðinna og notkunar þeirra á endurskinsmerkjum. Foreldrar og forráðamenn eiga að vera fyrirmyndir barna í þessu líkt og mörgu öðru. Heilsubærinn Hafnarfjörður vill með þessu framtaki opna á aðgengi að endurskinsmerkjum fyrir alla áhugasama og minnir á að best er að hafa endurskinsmerki fremst á ermum, hangandi meðfram hliðum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálm. Því meira endurskin á því fleiri stöðum því betra.

IMG_8881

Hægt er að nálgast endurskinsmerkin í afgreiðslu á opnunartíma þjónustuvers og Bókasafns Hafnarfjarðar.

Ábendingagátt