Trjágróður út fyrir lóðarmörk

Fréttir

Núna er rétti árstíminn fyrir trjá- og runnaklippingar. Öll viljum við geta komist leiðar okkar um gangstéttar, göngustíga og götur bæjarins án þess verða fyrir skaða vegna trjágreina sem vaxa út úr görðum hvort sem við erum gangandi, hlaupandi, hjólandi eða akandi. Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóð sinni innan lóðamarka.

Getur verið að gróðurinn á þinni lóð sé til vandræða fyrir aðra? Núna er rétti árstíminn fyrir trjá- og runnaklippingar. Öll viljum við geta komist leiðar okkar um gangstéttar, göngustíga og götur bæjarins án þess verða fyrir skaða vegna trjágreina sem vaxa út úr görðum hvort sem við erum gangandi, hlaupandi, hjólandi eða akandi. Trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur.

Í byggingarreglugerð grein 7.2.2. segir um tré og runna: „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðamarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götur, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“

Lóðarhafar eru hvattir til að snyrta trjágróður sinn á lóðarmörkum eftir því sem við á svo allir megi komast öruggir og vandræðalaust leiðar sinnar en dæmi eru um það að trjágróður skyggi á umferðarmerki, götuheiti og jafnvel lýsingu. 

Við hvetjum lóðareigendur til að tryggja að þetta sé í lagi. 

Ábendingagátt