Er trjágróður á þinni lóð nokkuð til vandræða fyrir aðra?

Fréttir

Trjágróður í Hafnarfirði hefur vaxið vel í sumar og á mörgum stöðum vel út á gangstéttir og gönguleiðir sem í mörgum tilfellum þýðir að gróðurinn er farinn að byrgja sýn bæði gangandi vegfarenda og akandi. 

Trjágróður í Hafnarfirði hefur vaxið vel í sumar og á mörgum stöðum
vel út á gangstéttir og gönguleiðir sem í mörgum tilfellum þýðir að gróðurinn er farinn að byrgja sýn bæði gangandi vegfarenda og akandi. Sjónlína akandi á alltaf að vera óhindruð
og gangandi vegfarendur (þar á meðal nemendur á leið sinni til og frá skóla eða frístundum) eiga að vera öruggir á gönguleiðum bæjarins og eiga ekki að þurfa
að ganga á akbrautum. 

Tökum höndum saman og fjarlægjum trjágróður sem stendur út fyrir lóðarmörk 

Ástandið er orðið bagalegt á mörgum stöðum í Hafnarfirði og nauðsynlegt að allir íbúar taki höndum saman og tryggi að trjágróður umfram lóðarmörk sé fjarlægður. Þegar þar að kemur þurfa snjóruðningstæki á göngustígum líka að komast óhindrað sína leið þannig að tryggja megi að m.a. gönguleiðir verði greiðfærar þegar vetur konungur lætur sjá sig.  Vandamálið er nokkuð stórt og mikið í
elstu hverfum bæjarins og í Setbergi þar sem götur eru oft þröngar. Einnig víða nærri skólum á gönguleiðum sem nemendur nýta mikið. 

Mynd-af-trjagrodri-2

Það sem þarf að hafa í huga er að:

  • Umferðarmerki séu sýnileg
  • Gróður byrgi ekki götulýsingu
  • Gangandi og hjólandi eigi greiða leið um gangstíga
  • Þar sem vélsópar og snjóruðningstæki fara um má lágmarkshæð gróðurs yfir stígum ekki vera lægri en 2,8 metrar
  • Yfir akbrautum má gróður ekki slúta niður fyrir 4,2 metra og gildir þessi hæðarregla einnig þar sem sorphirðubílar, slökkvilið og sjúkrabílar þurfa að komast eftir stétt eða stíg


Ert þú með allt þitt á hreinu? 


Trjágróðri sé haldið innan lóðarmarka

Byggingarreglugerð setur garðeigendum þá skyldu á herðar að halda gróðri innan lóðarmarka. Í reglugerðinni nr. 112/2012 gr. 7.2.2 segir: „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun”.

Lóðarhafar eru hvattir til að snyrta trjágróður sinn á lóðarmörkum eftir því sem við á svo allir megi komast öruggir og vandræðalaust leiðar sinnar en dæmi eru um það að trjágróður skyggi á umferðarmerki, götuheiti og jafnvel lýsingu.

Við hvetjum lóðareigendur til að tryggja að þetta sé í lagi.

Ábendingagátt