Ertu í atvinnuleit? Velkomin/n á nýjan ráðningarvef

Fréttir

Um miðjan desember var settur í loftið nýr ráðningarvefur hjá sveitarfélaginu og er hann nú orðinn skalanlegur og aðgengilegur í öllum snjalltækjum. Á ráðningarvef er að finna yfirlit yfir þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hverju sinni.

Velkomin á nýjan ráðningarvef Hafnarfjarðarbæjar 

Um miðjan desember var settur í loftið nýr ráðningarvefur hjá sveitarfélaginu og er hann nú orðinn skalanlegur og aðgengilegur í öllum snjalltækjum.  Á ráðningarvef er að finna yfirlit yfir þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hverju sinni.  Um er að ræða framtíðarstörf í einhverjum tilfellum eða störf til skemmri tíma. Sérstök athygli er vakin á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með rétt um 2000 starfsmenn sem sinna fjölbreyttum verkefnum á 70 ólíkum starfsstöðvum um allan bæ. Rík áhersla er lögð á það að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á og sem sinnir sínu starfi af þekkingu, ábyrgð og metnaði.

Kíktu á þau störf sem í boði eru þessa dagana – heimsækja ráðningarvef

Dæmi um störf sem í boði eru þessa dagana


Fjölskyldu- og barnamálasvið

• Starfsmaður í athvarf fyrir fólk með geðraskanir – Lækur
• Starfsmaður hjá Geitungum
• Tímabundið 60% starf á heimili fyrir fatlað fólk – Steinahlíð

Grunnskólar

• Aðstoðarverkefnastjóri tómstundamiðstöðvar – Lækjarskóli
• Aðstoðarverkefnastjóri tómstundamiðstöðvar – Skarðshlíðarskóli
• Baðverðir í íþróttahús – Lækjarskóli
• Frístundaleiðbeinandi – Hvaleyrarskóli
• Umsjónarkennari – Fjölgreinadeild í Menntasetrinu við Lækinn
• Umsjónarkennari á miðstigi – Hraunvallaskóli
• Umsjónarmaður fasteigna – Víðistaðaskóli

Leikskólar

• Deildarstjóri – Álfasteinn
• Leikskólakennari – Norðurberg
• Leikskólasérkennari eða þroskaþjálfi – Bjarkalundur

Ábendingagátt