Farsæld barna skiptir okkur öll máli – Farsældarvikan hafin
Glænýr bæklingur liggur nú í grunnskólum Hafnarfjarðarbæjar. Hann segir frá því hvert hægt er að leita þegar foreldrar og forráðamenn þurfa aðstoð fyrir börnin sín. Farsældarvikan er hafin og stendur 9.-13. mars.
Farsæld barna í fyrirrúmi
Þjónusta við börn er nú samþætt í þágu farsældar barna í leik-, grunn- og framhaldsskólum í Hafnarfirði. Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þurfa á að halda. Það getur hins vegar verið flókið að vita hvert á að leita til að fá viðeigandi aðstoð. Hafnarfjarðarbær hefur því ráðið níu tengiliði farsældar barna í alla skóla sína. Þeir tengja saman sérfræðingana með réttu úrræðin og leiða foreldrana á rétta braut.
Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins stendur nú yfir. Markmiðið er að vekja athygli foreldra á breyttu vinnulagi börnunum í hag. Hún undirstrikar mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og lyfta upp þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar farsældarlaganna.
- Til að kynna sér málið betur hefur verið settur upp vefurinn hfj.is/farsaeld. Þar má nálgast allar upplýsingar.
Alþingi hefur samþykkt ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Meginmarkmið laganna er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.
Samþætting þjónustu felur í sér að allir þjónustuveitendur sem koma að málefnum barns, innan og utan skólans, megi deila upplýsingum sín á milli, að höfðu samráði við foreldra. Beiðni og fræðslu um samþættingu þjónustu er hægt að nálgast hjá tengilið farsældar í skóla barnsins og geta bæði barn og foreldrar óskað eftir samtali.
