Fasteignagjöld 2019

Fréttir

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2019 eru nú aðgengilegir á mínum síðum á www.hafnarfjordur.is

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2019 eru nú aðgengilegir á mínum síðum á www.hafnarfjordur.is. Á álagningaseðlunum koma fram fjárhæðir fasteignaskatts, lóðarleigu, vatns-, fráveitu- og sorphirðugjalds. Einnig kemur fram fasteignamat og upplýsingar um eigendur og greiðendur gjaldanna.

Gjalddagar fasteignagjalda í Hafnarfirði árið 2019 eru tíu og er fyrsti gjalddaginn 1. febrúar og síðan fyrsta hvers mánaðar til 1. nóvember.  Í þeim tilvikum sem fasteignagjöld ársins eru kr. 25.000 eða lægri er öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga ársins þann 1. febrúar. Eindagi fasteignagjaldanna er 30 dögum eftir gjalddaga.

Í upphafi árs hefur elli- og örorkulífeyrisþegum verið veitt lækkun eða niðurfelling á fasteignaskatti samkvæmt reglum um viðmiðunarfjárhæð tekna samkvæmt skattframtali 2018.  Skilyrði lækkunar eða niðurfellingar er að um sé að ræða eigið húsnæði þar sem viðkomandi gjaldandi á lögheimili. Afsláttur
fasteignaskatts er endurreiknaður síðar á árinu þegar tekjur vegna ársins 2018
samkvæmt skattframtali 2019 liggur fyrir hjá Ríkisskattstjóra. 

Gjaldskrá Hafnarfjarðar

Fasteignagjöldin eru til innheimtu í heimabönkum og greiðslu- og álagningarseðlar fasteignagjalda eru ekki sendir út í pappírsformi nema til gjaldenda sem eru eldri en 68 ára og til lögaðila. Hægt er að óska eftir að fá greiðsluseðil sendan heim og eins geta þeir sem fá sendan seðil óskað eftir að því verði hætt.

Hægt er að nálgast álagningarseðil á www.island.is og á mínum síðum á www.hafnarfjordur.is

Allar nánari upplýsingar veitir þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar í s. 5855500 eða á netfanginu tjonustuver@hafnarfjordur.is 

Ábendingagátt