Félag eldri borgara hreiðrar um sig í Flatahrauni til ársins 2041
Félag eldri borgara í Hafnarfirði verður að Flatahrauni 3 til ársins 2041 hið minnsta. Það var tryggt í samningi sem undirritaður var á föstudag.
Félag eldri borgara enn meira rými
„Hjartanlega til hamingju með daginn. Febrúarmánuður 2026 er búinn að vera stórkostlegur en ég held að þetta toppi allt. Þetta hefur verið draumurinn okkar til langs tíma,“ sagði Valgerður Sigurðardóttir, formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði.
Valgerður ritaði á föstudag fyrir hönd félasgins undir leigusamning sem tryggir því viðveru á Flatahrauni 3 til ársins 2041. Hafnarfjarðarbær leigir húsnæðið af Verkalýðsfélaginu Hlíf. Félagið ritaði einni undir þjónustusamning um rekstur og starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Hraunsels fyrr í mánuðinum.
Mikilvægur dagur
„Þessi dagur er okkur mikilvægur félaginu til framtíðar. Við sjáum að við getum verið hér næstu fimmtán árin og félagið haldið áfram að blómstra,“ sagði hún og benti á að húsnæðið væri sérhannað fyrir starfsemina. Félagið hafi verið að Flatahrauni frá árið 2002 en áður að Reykjavíkurvegi 50. Það var stofnað árið 1968.
Mikill vöxtur
„Fyrir tíu árum voru hér 1.164 félagar á 12 námskeiðum. Nú eru þeir 2.400 og námskeiðin tuttugu. Endalaust tekur þetta húsnæði við. Það er eins og teygja. Hjartað okkar er hér og þetta skiptir okkur svo miklu máli,“ sagði Valgerður við undirskriftina en hún hefur einmitt stýrt því sem formaður síðasta áratuginn og vitnað þessar breytingar.
Hún segir að óvissan síðustu mánuði, þegar ekki var ljóst hvort starfsemin yrði áfram í húsinu hafi rifið í og gleðin því mikil. „Ég er svo gríðarlega ánægð og við öll og ég veit að stjórnin hefur haft miklar áhyggjur. Ég ætla að segja: Nú fer orkan okkar í að keyra starfið áfram,“ sagði hún. „Hjartans þakkir og innilega til hamingju,“ sagði hún.
Félag sem dafnar vel
Valdimar Víðisson bæjarstjóri tekur undir hamingjuóskirnar. „Félagsstarf eldra fólks hefur eflst og dafnað síðustu ár undir forystu FEBH. Það er því mikið gleðiefni að geta skrifað undir þennan samning og fest starfsemina enn frekar í sessi. Samningurinn gerir einnig ráð fyrir auknu rými sem kemur sér afar vel enda hefur fjölgað jafnt og þétt í FEBH.“
Já, innilega til hamingju öll með öflugt starf og fólk í Félagi eldri borgara í Hafnarfirði.