Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2020 og 4 ára áætlun 2020-2023 var samþykkt í bæjarstjórn í dag miðvikudaginn 11. desember. Rekstur Hafnarfjarðarbæjar hefur gengið vel síðustu ár og ber fjárhagsáætlun merki agaðrar fjármálastjórnunar, stöðugleika og sterkrar fjárhagsstöðu. Áhersla er áfram á aukna þjónustu og á þróun og eflingu stafrænna þjónustuleiða.
Traust fjárhagsstaða og skuldaviðmið heldur áfram að lækka
Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með heildarútgjöld um 29,3 milljarða króna, áætlaðan launakostnað 14,7 milljarða króna og áætlaðan fjármagnskostnað um 1,4 milljarða króna. Rekstur Hafnarfjarðarbæjar hefur gengið vel síðustu ár. Rekstarniðurstaðan var jákvæð sem nam 1.129 milljónum króna árið 2018 og jákvæð um 799 milljónir króna árið 2017. Þannig er jafnframt gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða yfirstandandi árs verði jákvæð um sem nemur 791 milljónum króna. Útsvarsprósenta verður óbreytt milli ára eða 14,48%. Systkinaafsláttur hefur aukist og frístundastyrkur hækkað. Skuldaviðmið verður um 105% í árslok 2020 og á áætlunum samkvæmt að vera um 112% í árslok 2019. Áætlað veltufé frá rekstri A- og B-hluta eru 3,6 milljarðar króna eða tæp 12% af heildartekjum. Til stendur að fjárfesta fyrir 3,1 milljarða á árinu 2020 og ber þar helst að nefna uppbyggingu á suðurhöfninni, kaup á félagslegu húsnæði, Ásvallabraut, framkvæmdir veitna og forgangsröðun í grunnþjónustu sem snýr m.a. að skólamannvirkjum, samgöngum, fráveitumálum og endurnýjun á Sólvangi ásamt áframhaldandi framkvæmdum við nýjan leik-, tónlistar- og grunnskóla í Skarðshlíð.
„Samhliða því að efla og bæta grunnþjónustu sveitarfélagsins, standa fyrir mikilvægum framkvæmdum og áframhaldandi viðhaldi í takt við ákveðna forgangsröðun þá höfum við verið að stíga mikilvæg skref í átt að „snjallari“ Hafnarfirði. Breyttar þarfir og starfsumhverfi krefjast þess að við leitum allra leiða til að efla þjónustu og gera upplýsingar sífellt aðgengilegri. Rík áhersla verður lögð á það á nýju ári að nútímavæða og þróa veitta þjónustu með skýrari verkferlum og hagnýtingu upplýsingatækni“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar við samþykkt fjárhagsáætlunar í dag. Áfram verður unnið að stórum innleiðingarverkefnum á öllum sviðum sem snúa m.a. að heilsueflingu allra aldurshópa, snemmtækri íhlutun, fjölmenningu, notendasamráði og umbótum á starfsumhverfi nemenda og starfsfólks.
Meðfylgjandi eru fylgigögn fjárhagsáætlunar:
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…