Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið nóg um að vera í undirbúningi fyrir Lífsgæðasetur St. Jó. sem hefur aðsetur að Suðurgötu 41 í Hafnarfirði. Fyrstu leigutakar undirrituðu nýverið leigusamninga og stefna þeir fyrstu á að flytja inn í sumar.
Tæplega helmingur leigutaka hafa gengið frá undirritun leigusamninga fyrir fyrsta áfanga
Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið nóg um að vera í undirbúningi fyrir Lífsgæðasetur St. Jó sem hefur aðsetur að Suðurgötu 41 í Hafnarfirði. Undirbúningur hefur staðið yfir í tæp 2 ár eða frá því Hafnarfjarðarbær festi kaup á húsnæðinu sumarið 2017 og lagði upp með að finna nýtt hlutverk fyrir fyrrum St. Jósefsspítala.
Áhersla á heilsu, samfélag og sköpun
Lífsgæðasetur St. Jó er samfélag sem býður upp á forvarnir, heilsuvernd, snemmtæka íhlutun, fræðslu og skapandi setur. Allir rekstraraðilar eiga það sammerkt að auka lífsgæði sinna skjólstæðinga með áherslu á heilsu, samfélag og sköpun. Grunnur þeirra byggir m.a. á markþjálfun, sálfræðiþjónustu, jóga, nuddi, heilsueflandi þjónustu fyrir eldri borgara, samtals þerapíum og sköpun og þróun á tækjum og tækni fyrir heilbrigðisrannsóknir. Setrið er rekið sem sjálfbær rekstrareining á vegum Hafnarfjarðarbæjar. „Við erum ánægð með að Hafnfirðingar hafi eignast gamla spítalann og að bæjarstjórn hafi tekið þá ákvörðun að gefa byggingunni nýtt líf með fjölbreyttri starfsemi sem mun bæta lífsgæði íbúa Hafnarfjarðar með ýmsum hætti“ segir Eva Michelsen, verkefnastjóri hjá Hafnarfjarðarbæ.
Fyrstu fyrirtækin flytja inn í sumar
Fyrstu leigutakar undirrituðu nýverið leigusamninga og stefna þeir fyrstu á að flytja inn í sumar. Formleg opnunarhátíð verður í september, kringum 93 ára afmæli gamla spítalans, þar sem gestum og gangandi gefst tækifæri til að kynnast starfseminni og sjá endurbæturnar á byggingunni. „Á opnunarhátíð verður í anddyri hússins sýning á vegum Byggðasafns Hafnarfjarðar þar sem sögu hússins og St. Jósefssystra, sem byggðu húsið á sínum tíma, verður gerð góð skil. Sýningin mun lifa áfram í anddyrinu eftir opnun þannig að gestir og gangandi geti fræðst um húsið þegar heimsækja það“ segir Eva. Meðal fyrirtækja sem flytja inn í húsið í fyrsta áfanga eru Örmælir, Veraldarvinir, Eldmóður markþjálfun, Unnandi fræðasetur, Saga – Story House og Lex familia.
Tengiliðir fyrir nánari upplýsingar
Framkvæmdir eru í fullum gangi við Lífsgæðasetur St. Jó.
Nánari upplýsingar um þá leigutaka sem hafa gengið frá undirritun leigusamninga
Örmælir: Örmælir er frumkvöðlafyrirtæki sem vinnur að því að þróa tæki sem vísindamenn í heilbrigðisrannsóknum geta nýtt sér en tækið kemur m.a. við sögu í krabbameinsrannsóknum og ýmsum rannsóknum á genagöllum. Að fyrirtækinu standa Sunna Björg Skarphéðinsdóttir (lífeðlisfræðingur) og Einir Guðlaugsson (rafmagnsverkfræðingur).
Veraldarvinir: Veraldarvinir eru íslensk félagasamtök sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða. Samtökin voru stofnuð í júní 2001 og hafa frá upphafi haft umhverfismál í öndvegi. Markmið samtakanna er að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og betri umgengni manna við umhverfi sitt. Við nálgumst markmið okkar með alþjóðlegu samstarfi og sjálfboðaliðastarfi og skipulagningu umhverfis- og menningartengdra verkefna í samvinnu við sveitarfélög og frjáls félagasamtök. Veraldarvinir eru brautryðjendur í skipulagningu slíkra verkefna hér á Íslandi.
Eldmóður Markþjálfun: Að fyrirtækinu stendur Kristín Þórsdóttir og býður hún upp á markþjálfun fyrir alla einstaklinga. Kristín er ACC markþjálfi og er einnig að efla færni sína í kynlífs-markþjálfun (e. sex coaching). Um þessar mundir fer hún í grunnskóla landsins með forvarnar-fyrirlesturinn „Sjálfsmynd og kynheilbrigði“ þar sem hún deilir sinni reynslu. Markmið Eldmóðs er að hjálpa einstaklingum að efla sjálfa sig og finna kraft sinn og getu til þess að fylgja sínum markmiðum og draumum.
Lex familia: Lex familia bíður uppá fjölskyldumeðferð til að takast á við margvíslegan vanda sem upp geta komið í fjölskyldum eða hjá einstaklingum ásamt lögfræðiaðstoð sem lítur að fjölskyldurétti þegar tekist er á um ýmis álitaefni sem upp geta komið í samskiptum fólks. Að fyrirtækinu standa þær Rakel Róbertsdóttir og Sóley Gunnarsdóttir. Rakel er þroskaþjálfi og fjölskyldufræðingur og hefur starfað um árabil hjá Hafnarfjarðarbæ í geðfötlunarmálum. Sóley er lögfræðingur og hefur mikla þekkingu á fjölskyldurétti og sáttameðferð.
Unnandi – fræðasetur: Unnandi – fræðasetur er hugarfóstur Steinunnar og Unnar Garðarsdætra. Með stofnun Unnanda vilja þær, með fjölbreyttum og gagnreyndum aðferðum, hjálpa fólki að finna samhljóm hugar, líkama og hjarta í því augnamiði að auka innsýn, víkka út reynslu og dýpka mannleg tengsl. Starfsemin byggir á námskeiðum, einkatímum og sérstökum viðburðum. Steinunn er í sérhæfðu framhaldsnámi í líkamsmiðaðri áfallameðferð og Unnur er mannfræðingur og kennari að mennt með sérhæfingu í umbreytandi reynslu.
Saga – Story House: Saga – Story House er lífsgæðafyrirtæki með áherslu á fólk og sögur, fjölbreytta fræðslu, ráðgjöf, heilsueflandi ferðir og lífsgæðavörur. Þjónustan hentar fyrirtækjum og einstaklingum á öllum aldri. Saga – Story House er m.a. í samstarfi við fræðslu- og ferðaþjónustuaðila og Virk Starfsendurhæfingarsjóð. Eigendur Sögu – Story House eru þær Guðbjörg Björnsdóttir iðjuþjálfi og Ingibjörg Valgeirsdóttir, MBA, uppeldis- og menntunarfræðingur/fjölmiðlafræði og jógakennari.
Lífsgæðasetur St. Jó. er á FACEBOOK
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…