Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær og Sóltún öldrunarþjónusta ehf. undirrituðu í dag samning um rekstur sérhæfðrar dagdvalar á Sólvangi. Samningurinn tekur til reksturs tólf sérhæfðra dagdvalarrýma á Sólvangi og hefur það að markmiði að tryggja öldruðum einstaklingum með heilabilun tiltekna þjónustu og styðja við aðstandendur þeirra með rekstri sérhæfðrar dagdvalar.
Hafnarfjarðarbær leggur til fullbúið og nýlega endurnýjað húsnæði á 1. hæð á Sólvangi, Sólvangsvegi 2 í Hafnarfirði. Sóltún öldrunarþjónusta mun sjá um rekstur rýmanna og er áhersla lögð á samvinnu við Alzheimersamtökin sem faglegum bakhjarli en Alzheimersamtökin munu á árinu flytja í Lífsgæðasetur St. Jó að Suðurgötu 46 í Hafnarfirði og opna þar nýja þjónustumiðstöð.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Halla Thoroddsen framkvæmdastjóri Sóltúns undirrita samning um rekstur sérhæfðrar dagdvalar á Sólvangi.
„Áform okkar um uppbyggingu á heildrænni þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara á Sólvangssvæðinu heldur áfram. Uppbyggingin hefur miðað vel síðustu mánuði og ár og nú bætast við þessi tólf sérhæfðu rými. Mikilvæg viðbót sem er til þess fallin að samþætta enn frekar faglega alhliða þjónustu við eldri borgara í Hafnarfirði. Næstu skref snúa að endurbótum og uppbyggingu á 2., 3. og 4. hæð í gamla Sólvangi í samvinnu við Heilbrigðisráðuneytið. Þar er um að ræða spennandi þróunarverkefni sem verið er að útfæra“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Sóltún öldrunarþjónusta er í dag rekstraraðili hjúkrunarheimilis í nýbyggingu við Sólvang og dagdvalar fyrir aldraða á fyrstu hæð í gamla Sólvangi. Glæsilegt og nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili var opnað formlega 17.júlí 2019 og leysti þar með af hólmi gamla Sólvang. Samhliða var tekin ákvörðun um að fjölga hjúkrunarrýmum á Sólvangi til viðbótar þeim 60 rýmum sem eru í nýbyggingunni og fara af stað í framkvæmdir og umtalsverðar endurbætur á gamla Sólvangi.
Samningurinn var samþykktur í bæjarstjórn 9. desember sl.
Á mynd eru f.v. Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs, Ágúst Bjarni Garðarsson formaður bæjarráðs, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri, Sigríður Kristinsdóttir sviðstjóri stjórnsýslusviðs, Ingibjörg Eyþórsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Sóltúni öldrunarþjónustu ehf. og Halla Thoroddsen framkvæmdastjóri.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…