Börn 6-12 ára hvött til að taka þátt í dorgveiðikeppni

Fréttir

Mánudaginn 29. júní er áætlað að halda hina árlegu dorgveiðikeppni á Flensborgarbryggju fyrir hafnfirsk börn fædd 2007-2012. Hefst keppnin um 13:30 og veiða krakkarnir til um 14:30.

Mánudaginn 29. júní er áætlað að halda
hina árlegu dorgveiðikeppni á Flensborgarbryggju fyrir hafnfirsk börn á
aldrinum 6-12 ára fædd 2007-2012. Hefst keppnin um 13:30 og veiða krakkarnir
til um 14:30.

Öll börn á aldrinum 6-12 hjartanlega velkomin

Keppt verður í þremur flokkum – flestu
fiskarnir, stærsti fiskurinn og furðufiskurinn 2020.
Keppnin verður færð á annan dag ef veður er slæmt. Dorgveiðikeppnin hefur verið
sú fjölmennasta á landinu í mörg ár. Öll börn á ofangreindum aldri eru
velkomin. Hægt verður að fá færi og beitu á staðnum. Starfsmenn
Hafnarfjarðarbæjar sjá um gæslu á svæðinu og mun Siglingaklúbburinn Þytur sjá
um gæslu af sjó.

Við hvetjum öll börn á aldrinum 6-12 ára til að taka þátt! 

Nánari upplýsingar veitir: 

Stella Björg Kristinsdóttir, fagstjóri
frístundastarfs, í síma  585-5760 og 664-5769

Ábendingagátt