Fjölskyldugarðar eru opnir öllum bæjarbúum

Fréttir

Fjölskyldugarðar Hafnarfjarðar eru opnir öllum bæjarbúum og um að ræða frábært tækifæri fyrir fjölskyldur og einstaklinga í Hafnarfirði til að rækta sitt eigið grænmeti og hugsa um í sumar.  

Frábært tækifæri til ræktunar fyrir alla áhugasama – einstaklinga og
fjölskyldur

Fjölskyldugarðar Hafnarfjarðar eru opnir öllum bæjarbúum og um að ræða frábært tækifæri fyrir fjölskyldur og einstaklinga í Hafnarfirði til að rækta sitt
eigið grænmeti og hugsa um í sumar. Fjölskyldugarðarnir verða opnir á
Víðistöðum og á Öldugötu. Kostnaður fyrir einn garð er kr. 1.541.-  og fyrir tvo garða kr. 2.568.- Líkt og hin síðari ár er grænmeti eða annað efni til ræktunar ekki
innifalið en aðgengi að vatni og minniháttar verkfærum áfram til staðar.
Garðarnir afhendast plægðir og hefst úthlutun undir lok maí.

Skráning hefst 5. apríl og fer fram hér – velja þarf sveitarfélag og staðsetningu á fjölskyldugarði sem óskað er eftir (fjölskyldugarður Öldutún/fjölskyldugarður Víðistaðir)

Ræktum okkar eigið grænmeti í sumar!
Ræktum okkur sjálf á sama tíma og tengslin við fólkið okkar! 

Ég vil sækja um garð takk!

Ábendingagátt