Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Í ágúst 2019 var tekin sú ákvörðun að fara af stað með nýja leið í upplýsingagjöf til Hafnfirðinga og vina Hafnarfjarðar og í september 2019 leit hlaðvarpið Vitinn dagsins ljós. Í Vitanum er fjölbreytt þjónusta sveitarfélagsins tekin fyrir og fá hlustendur tækifæri til að kynnast því fagfólki sem starfar á bak við tjöldin að metnaðarfullum verkefnum og þjónustuveitingu á fjölbreyttu sviði.
Í ágúst 2019 var tekin ákvörðun um að fara af stað með nýja leið í upplýsingagjöf til Hafnfirðinga og annarra hagsmunaaðila Hafnarfjarðarbæjar og í september 2019 leit hlaðvarpið Vitinn dagsins ljós. Í þáttum Vitans er fjölbreytt þjónusta sveitarfélagsins tekin fyrir og fá hlustendur þannig tækifæri til að kynnast því fagfólki sem starfar á bak við tjöldin að metnaðarfullum verkefnum og þjónustuveitingu á fjölbreyttu sviði. Næsti þáttur fer í loftið 10. janúar 2020.
Í Vitanum, hlaðvarpi Hafnarfjarðarbæjar, er fjölþætt þjónusta sveitarfélagsins tekin fyrir með góðu spjalli við áhugaverða einstaklinga sem allir eiga það sameiginlegt að vinna af áhuga og heilindum í þágu bæjarins. Umsjónaraðilar Vitans þessa mánuði hafa verið tveir, þau Sigurjón Ólafsson sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs og Árdís Ármannsdóttir, samskiptastjóri sveitarfélagsins. Umsjónaraðilar Vitans sigla sælir inn í nýtt ár og horfa með stolti og mikilli ánægju á þá fjórtán þætti sem settir hafa verið í loftið nú þegar. Í gegnum gott spjall við samstarfsfélaga hafa þau Sigurjón og Árdís m.a. tekið fyrir sögu bæjarins, Lífsgæðasetur St. Jó, menningarbæinn Hafnarfjörð, málefni hælisleitenda og flóttafólks, skipulagsmál, verkefni þjónustuvers, menntastefnu í mótun, menningu og listir, nýsköpun í skólastarfi og nýja kennsluhætti, mikilvægi tónlistar, mannauð bæjarins og sveitarfélagið sem vinnustað, innleiðingu núvitundar í skólastarfið, óhefðbundin tjáskipti og svo var það bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Rósa Guðbjartsdóttir, sem heimsótti Vitann í síðasta þætti ársins 2019.
Hægt er að hlusta á alla þætti Vitans hér en einnig er hægt að hlusta á þættina á hlaðvarpsveitum á borð við Spotify , Simplecast, Apple Podcast og Pocketcast
Fyrsti þáttur ársins 2020 verður settur í loftið föstudaginn 10. janúar og verður viðmælandi Vitans í þeim þætti Hulda Björk Finnsdóttir verkefnastjóri Brúarinnar hjá Hafnarfjarðarbæ. Fleiri áhugaverðir þættir eru í undirbúningi og mótun næstu vikur og mánuði. Þannig mun Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, nú í janúar m.a. ræða um forvarnir og Heilsubæinn Hafnarfjörð og Björn Bögeskov um verkefni þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðarbæjar. Það er af nógu að taka og eru Hafnfirðingar og aðrir hagsmunaðilar hvattir til að hlusta á þættina og fræðast þannig enn betur og meira um fjölþætta þjónustu sveitarfélagsins.
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…